Ísland tók þátt í mannúðaraðgerðum á Haítí Heimsljós 30. september 2021 15:31 UNOCHA Ólafur Loftsson fór á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og utanríkisráðuneytisins til Haíti. Ísland tók þátt í mannúðaraðgerðum á vegum Sameinuðu þjóðanna á Haíti í kjölfar jarðskjálftans sem reið yfir vesturhluta landsins um miðjan ágústmánuð. Upptök skjálftans urðu um 160 km vestur af höfuðborginni Port-au-Prince og hann mældist 7,2 stig á Richter. UNOCHA Ólafur Loftsson fór á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og utanríkisráðuneytisins til Haíti. Þar starfaði hann fyrir Miðstöð Sameinuðu þjóðanna fyrir hamfaramat (United Nations Disaster Assessment Center, UNDAC) frá 25. ágúst fram í miðjan september. „Það var sérstök tilfinning að koma aftur hingað eftir jarðskjálftann 2010. Dagarnir voru langir og við vorum stanslaust að vinna í greiningu á því hvaða hjálpargögn vantaði og leiða saman aðila til að koma þeim eins skjótt til þeirra sem á þurftu að halda. Það er líka ljóst að það mun taka langan tíma fyrir þetta fátæka land að rétta úr kútnum og að áfram verði kallað eftir virkum stuðningi alþjóðasamfélagsins,“ segir Ólafur. UNDAC hafði það hlutverk að aðstoða stjórnvöld við að framkvæma mat á aðstæðum og samhæfa neyðaraðgerðir á vettvangi. Teymi UNDAC var staðsett á þremur stöðum á Haíti, í Port au Prince, Les Cayes og í Jeremie, en gífurleg eyðilegging varð á innviðum landsins, eins og skólum, sjúkrahúsum, vatnsveitum og samgöngumannvirkjum. „Þetta hefur verið mjög lærdómsríkur tími og það var mikil reynsla og ánægja að vinna með öllu þessu góða fólki,“ segir Ólafur. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Haítí Mest lesið Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Kuldaskil á leið yfir landið Veður Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Haítí Mest lesið Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Kuldaskil á leið yfir landið Veður Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður