Valsmenn féllu þegar þeir töpuðu síðast fjórum leikjum í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2021 14:00 Birkir Már Sævarsson eftir tapleikinn á móti Víkingum 22. ágúst síðastliðinni. Valsliðið hefur ekki unnið leik síðan. Vísir/Hulda Margrét Valsmenn eru stigalausir í síðustu fjórum Pepsi Max deildarleikjum sínum. Það hefur aðeins gerst tvisvar áður hjá Hlíðarendafélaginu á þessari öld. Hrunið á Hlíðarenda er orðið sögulegt. Valsliðið byrjaði taphrinu sína á toppi Pepsi Max deildarinnar en á nú ekki möguleika á Evrópusæti fyrir lokaumferðina. Valsmenn töpuðu í gær fjórða deildarleik sínum í röð sem er ekki aðeins lengsta taphrina félagsins í tólf liða efstu deild heldur sú lengsta í meira en átján ár. Valsmenn hafa reyndar tapað síðustu fimm leikjum sínum því á undan tapleiknum á móti KA um helgina þá tapaði liðið fyrir Lengjudeildarliði Vestra í bikarnum. Hinir tapleikirnir í deildinni eru á móti Víkingi, Stjörnunni og Breiðabliki. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2003 sem Valsliðið tapar fjórum deildarleikjum í röð á einu tímabili. Sumarið 2003 þá féll Valur úr deildinni um haustið en liðið hefur verið í úrvalsdeildinni síðan Hlíðarendapiltar komust aftur upp í deildina 2005. Það er ekki nóg með það þá féllu Valsmenn einnig úr deildinni 2001 þegar þeir töpuðu líka fjórum deildarleikjum í röð. Valsmenn hafa því fallið úr deildinni í tvö síðustu skipti þar sem hafa tapað fjórum deildarleikjum í röð. Valsliðið fellur ekki í ár en liðið var í efsta sæti deildarinnar þegar taphrinan hófst 22. ágúst síðastliðinn. Nú eru Valsmenn í fimmta sæti, níu stigum á eftir toppliði Víkings.
Hrunið á Hlíðarenda er orðið sögulegt. Valsliðið byrjaði taphrinu sína á toppi Pepsi Max deildarinnar en á nú ekki möguleika á Evrópusæti fyrir lokaumferðina. Valsmenn töpuðu í gær fjórða deildarleik sínum í röð sem er ekki aðeins lengsta taphrina félagsins í tólf liða efstu deild heldur sú lengsta í meira en átján ár. Valsmenn hafa reyndar tapað síðustu fimm leikjum sínum því á undan tapleiknum á móti KA um helgina þá tapaði liðið fyrir Lengjudeildarliði Vestra í bikarnum. Hinir tapleikirnir í deildinni eru á móti Víkingi, Stjörnunni og Breiðabliki. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2003 sem Valsliðið tapar fjórum deildarleikjum í röð á einu tímabili. Sumarið 2003 þá féll Valur úr deildinni um haustið en liðið hefur verið í úrvalsdeildinni síðan Hlíðarendapiltar komust aftur upp í deildina 2005. Það er ekki nóg með það þá féllu Valsmenn einnig úr deildinni 2001 þegar þeir töpuðu líka fjórum deildarleikjum í röð. Valsmenn hafa því fallið úr deildinni í tvö síðustu skipti þar sem hafa tapað fjórum deildarleikjum í röð. Valsliðið fellur ekki í ár en liðið var í efsta sæti deildarinnar þegar taphrinan hófst 22. ágúst síðastliðinn. Nú eru Valsmenn í fimmta sæti, níu stigum á eftir toppliði Víkings. Flest töp Vals í röð á einu tímabili í tólf liða efstu deild: 4 - 22. ágúst 2021 - enn í gangi 3 - 20. maí til 15. júní 2020 3 - 25. júlí til 20. ágúst 2015 3 - 26. júní til 27. júlí 2014 3 - 11. ágúst til 31. ágúst 2014 3 - 15. maí til 31. maí 2012 3 - 16. september til 25. september 2010 - Flest töp Vals í röð á einu tímabili í efstu deild á þessari öld: 4 - 22. ágúst 2021 - enn í gangi 4 - 29. maí til 25. júní 2003 4 - 26. júlí til 26. ágúst 2001 3 - 20. maí til 15. júní 2020 3 - 25. júlí til 20. ágúst 2015 3 - 26. júní til 27. júlí 2014 3 - 11. ágúst til 31. ágúst 2014 3 - 15. maí til 31. maí 2012 3 - 16. september til 25. september 2010 3 - 15. júlí til 11. ágúst 2003
Flest töp Vals í röð á einu tímabili í tólf liða efstu deild: 4 - 22. ágúst 2021 - enn í gangi 3 - 20. maí til 15. júní 2020 3 - 25. júlí til 20. ágúst 2015 3 - 26. júní til 27. júlí 2014 3 - 11. ágúst til 31. ágúst 2014 3 - 15. maí til 31. maí 2012 3 - 16. september til 25. september 2010 - Flest töp Vals í röð á einu tímabili í efstu deild á þessari öld: 4 - 22. ágúst 2021 - enn í gangi 4 - 29. maí til 25. júní 2003 4 - 26. júlí til 26. ágúst 2001 3 - 20. maí til 15. júní 2020 3 - 25. júlí til 20. ágúst 2015 3 - 26. júní til 27. júlí 2014 3 - 11. ágúst til 31. ágúst 2014 3 - 15. maí til 31. maí 2012 3 - 16. september til 25. september 2010 3 - 15. júlí til 11. ágúst 2003
Pepsi Max-deild karla Valur Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti Ronaldo sá rautt og óð reiður til Heimis Fótbolti Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Gaman í íslenska klefanum eftir leik Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka Sjá meira