Svava og stöllur í ágætis stöðu þrátt fyrir tap Valur Páll Eiríksson skrifar 1. september 2021 18:00 Svava Rós Guðmundsdóttir og liðsfélagar hennar í Bordeaux þurfa að vinna upp eins marks forskot Wolfsburg í síðari leiknum í Frakklandi. VÍSIR/BÁRA Landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir spilaði síðustu 25 mínúturnar er lið hennar Bordeaux frá Frakklandi tapaði 3-2 fyrir þýska stórliðinu Wolfsburg í fyrri leik umspils um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.
Svava Rós byrjaði á bekknum hjá Bordeaux sem heimsótti þær þýsku til Wolfsburgar í dag. Ewa Pajor kom Wolfsburg yfir eftir 13 mínútna leik en innan við mínútu síðar hafði hin hollenska Katja Snoeijs jafnað fyrir franska liðið. Landa hennar Jill Roord, sem er nýkominn til Wolfsburgar frá Arsenal, kom Wolfsburg hins vegar 2-1 yfir fimm mínútum síðar, á 19. móinútu leiksins. 2-1 stóð í hálfleik. Þriðji Hollendingurinn Dominique Janssen tvöfaldaði forystu Wolfsburgar eftir stundarfjórðungsleik í síðari hálfleik og fimm mínútum síðar kom Svava Rós inn á sem varamaður fyrir markaskorarann Snoejis. Innkoma Svövu virðist hafa haft ágætis áhrif þar sem Mickaella Cardia minnkaði muninn fyrir Bordeaux aðeins fimm mínútum eftir að hún kom inn á, á 70. mínútu leiksins. Fleiri urðu mörkin ekki og Wolfsburg er því með 3-2 forystu í einvíginu. Liðin mætast að nýju í Frakklandi á fimmtudaginn í næstu viku en liðið sem vinnur einvígið fer í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Sjá meira