Fram og Grótta með sigra í Lengjudeildinni Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. ágúst 2021 21:17 Grótta er í sjötta sæti Lengjudeildarinnar. Vísir/Haraldur Fram og Grótta unnu góða sigra í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Framarar unnu 2-0 heimasigur gegn tíu leikmönnum Fjölnis og Grótta vann 2-1 þegar að Selfyssingar kíktu í heimsókn.
Þórir Guðjónsson kom Fram yfir gegn Fjölni eftir 35 mínútna leik og staðan var því 1-0 þegar flautað var til hálfleiks. Valdimar Ingi Jónsson nældi sér í sitt annað gula spjald í liði Fjölnismanna þegar um fimm mínútur voru til leiksloka og þeir þurftu því að klára leikinn manni færri. Heimamenn nýttu sér liðsmuninn og Guðmundur Magnússon tryggði 2-0 sigur á 91. mínútu. Fram er því enn taplaust á toppnum með 38 stig eftir 14 leiki, níu stigum fyrir ofan næsta lið. Fjölnismenn eru enn í þriðja sæti Lengjudeildarinnar með 23 stig og þurfa því að fara að spýta í lófana ef þeir ætla sér að vera með í baráttunni um sæti í deild þeirra bestu. Pétur Árnason kom Gróttumönnum yfir gegn Selfyssingum á 34. mínútu í hinum leik kvöldsins. Staðan í hálfleik var því 1-0, en Arnar Helgason tvöfaldaði forystu heimamanna snemma í seinni hálfleik. Kenan Turudija minnkaði muninn á 61. mínútu, en nær komust Selfyssingar ekki. Grótta er í sjötta sæti deildarinnar með 20 stig, en Selfyssingar eru í harðri fallbaráttu í tíunda sæti með 12 stig.
Íslenski boltinn Grótta UMF Selfoss Fjölnir Fram Lengjudeildin Mest lesið McIlroy glaður að vera laus við pólitíkina í golfi Sport Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Körfubolti Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Körfubolti Arnór og Stiven mættust í Íslendingaslag Handbolti Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Körfubolti Arnar hitti úr öllu og Þorsteinn hamraði á markið Handbolti Stærsta tap tímabilsins beið Fram í Sviss Handbolti Arna hélt hreinu og lagði upp sigurmarkið Fótbolti Fram hirti sigur af Haukum eftir æsispennu Handbolti Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima Enski boltinn Fleiri fréttir Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Sjá meira