„Markmiðið að vinna Meistaradeildina“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. júní 2021 09:30 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir vill vinna fleiri titla með Bayern München. getty/Alexander Scheuber Karólínu Leu Vilhjálmsdóttir dreymir um að feta í fótspor Söru Bjarkar Gunnarsdóttur og vinna Meistaradeild Evrópu.
Þýskalandsmeistarar Bayern München, lið Karólínu, komust í undanúrslit Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili en töpuðu fyrir Chelsea, 5-3 samanlagt. Allt stefndi í að seinni leikurinn færi í framlengingu en Chelsea skoraði tvö mörk undir lokin og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Þar fékk liðið skell gegn Barcelona, 4-0. Á næsta tímabili ætla Bæjarar að taka næsta skref og fara alla leið í Meistaradeildinni. „Það er alltaf stefnan hjá Bayern. Þau eru titlaóð. Það hefðu verið rosalega mikil vonbrigði ef við hefðum ekki náð að vinna deildina núna því þá hefðum við misst af þremur titlum. Það var kærkomið að vinna það en maður vill alltaf meira,“ sagði Karólína. „Það væri geggjað að vinna Meistaradeildina og það er klárlega markmiðið á mínum ferli. Mig langar mjög mikið að vinna Meistaradeildina. Það er eitthvað sem allir leikmenn vilja gera.“ Sara Björk varð fyrst íslenska fótboltakvenna til að vinna Meistaradeildina á síðasta tímabili. Hún var þá í sigurliði Lyon og skoraði í úrslitaleiknum gegn Wolfsburg. „Hún er rosalega góð fyrirmynd og maður sér að maður getur þetta þegar maður sér hana rústa þessum fótboltaheimi. Þá sér maður að þetta er hægt,“ sagði Karólína.
Þýski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira