Barnshafandi starfsfólk Landspítala fær loks nýjar óléttubuxur Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 8. júní 2021 13:33 Buxurnar uppfylla sænska staðla. Skjáskot Barnshafandi starfsfólk Landspítala getur glaðst á ný en nýjar óléttubuxur eru við það að fara í dreifingu á spítalanum. Alla jafna eru hundrað konur óléttar á spítalanum hverju sinni, það er starfsmenn, og hafa óléttubuxurnar hingað til ekki þótt vænlegur kostur. „
Óléttubuxurnar hafa ekki verið að uppfylla okkar kröfur og þær hafa verið lítið notaðar af óléttum konum. Þær kjósa frekar að nota venjulegar buxur sem eru heldur ekki heppilegar, þannig að það hefur verið mikill skortur og vöntun á góðum óléttubuxum,“ segir Arna Lind Sigurðardóttir, deildarstjóri vöruþjónustu Landspítala, í myndbandi sem birtist á Facebook-síðu spítalans í dag. Hún segir að lengi hafi verið beðið eftir góðum óléttubuxum á spítalanum. „Þær eru að koma í hús núna. Við erum að undirbúa að þær fari í umferð á næstu vikum og þetta eru buxur sem fylgja sænskum staðli. Þetta er hluti af fataverkefni sem hefur verið í þróun undanfarin ár og er að komast á síðustu skref núna,“ segir Arna. Meðal nýjunga á nýju óléttubuxunum eru vasar á hlið skálmanna, þær eru mjúkar og úr þykku efni sem ekki er gegnsætt. „Óléttubuxurnar eru teygjanlegar, mjög þægilegar og með mjúka breiða teygju sem fer yfir kviðinn.“
Landspítalinn Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Fleiri fréttir Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Sjá meira