Handteknir eftir um tuttugu íkveikjur í Eskilstuna Atli Ísleifsson skrifar 17. maí 2021 08:03 Tilkynning um fyrsta eldsvoðann barst lögreglu um klukkan 22 að staðartíma í gærkvöldi, en síðan tóku fleiri tilkynningar að hrannast inn á fremur skömmum tíma. Getty Lögregla í Svíþjóð handtók í nótt þrjá menn á þrítugsaldri sem grunaðir eru um íkveikjur á um tuttugu mismunandi stöðum í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af Stokkhólmi. Sömuleiðis var ráðist á lögreglustöð í bænum.
Thomas Agnevik, talsmaður lögreglunnar í Eskilstuna, segir að mennirnir hafi áður komið við sögu lögreglu, meðal annars vegna fíkniefnabrota, og að ekki sé langsótt að tengja málið við skipulagða glæpastarfsemi. Tilkynning um fyrsta eldsvoðann barst lögreglu um klukkan 22 að staðartíma í gærkvöldi, en síðan tóku fleiri tilkynningar að hrannast inn á fremur skömmum tíma. Var fyrst og fremst kveikt í bílum, en einnig húsbílum. Lögregla í Eskilstuna telur að um íkveikjurnar hafi verið samstilltar þar sem þær hafi verið svo margar á svo skömmum tíma. Sömuleiðis hafi eldi verið kastað að lögreglustöðinni þar sem viðbúnaður hefur nú verið aukinn. SVT segir frá því að fyrst hafi lögreglu borist tilkynning um mann sem vopnaður væri skammbyssu. Er talið að þar hafi um gabb verið að ræða, en á meðan lögregla sinnti því útkalli hófust íkveikjurnar. Búið er að slökkva alla eldana og hafa ekki borist tilkynningar um að nokkur hafi slasast.
Svíþjóð Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Erlent Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Innlent Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Innlent Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Erlent Fleiri fréttir Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Sjá meira