Conor segist vera að íhuga að kaupa Man. Utd. Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. apríl 2021 09:01 Þótt færsla Conors McGregor hafi eflaust verið sett fram í miklum hálfkæringi yrði hann eflaust mun vinsælli eigandi hjá stuðningsmönnum Manchester United en Glazer-fjölskyldan. getty/Jeff Bottari Írski bardagakappinn Conor McGregor spurði fylgjendur sína á Twitter í gær hvort hann ætti ekki bara að kaupa Manchester United.
Conor skrifaði færsluna í gær þegar fréttirnar um útgöngu ensku félaganna úr ofurdeildinni og væntanlegt brotthvarf Eds Woodward frá United bárust. United var eitt sex enskra félaga sem voru í hópi stofnmeðlima ofurdeildarinnar. Eftir mikla andstöðu frá stuðningsmönnum félaganna ákváðu þau að draga sig út úr bandalaginu. Eftir standa því sex félög, þrjú frá Spáni og þrjú frá Ítalíu. Conor sá sér leik á borði í gærkvöldi og spurði fylgjendur sína álits á því hvort hann ætti ekki að kaupa United. „Hæ allir, ég er að hugsa um að kaupa Manchester United! Hvað segið þið um það?“ skrifaði Írinn til þeirra 8,6 milljóna sem fylgja honum á Twitter. Hey guys, I m thinking about buying Manchester United! What do you think?— Conor McGregor (@TheNotoriousMMA) April 20, 2021 Conor er stuðningsmaður United enda er írska tengingin við félagið sterk. Conor hafði sérstaklega mikið álit á löndum sínum, Roy Keane og Denis Irwin, sem léku lengi með United. Conor tapaði fyrir Dustin Poirier í síðasta bardaga sínum í janúar. Hann hefur tapað þremur af síðustu sex bardögum sínum.
Enski boltinn Ofurdeildin Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport „Ég elska peninga“ Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ Sjá meira