Pepsi Max-deild karla hefst eftir tvær vikur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. apríl 2021 10:31 Íslandsmeistarar Vals taka á móti ÍA í upphafsleik Pepsi Max-deildar karla föstudaginn 30. apríl. vísir/vilhelm Pepsi Max-deild karla hefst með leik Íslandsmeistara Vals og ÍA föstudagskvöldið 30. apríl. Leikurinn átti upphaflega að fara fram sumardaginn fyrsta, 22. apríl, en verður seinkað um rúma viku. Þrír leikir eru á laugardaginn og sunnudaginn eru tveir leikir á dagskránni, meðal annars stórleikur Breiðabliks og KR á Kópavogsvelli. Nýliðar Leiknis sækja Stjörnuna heim laugardagskvöldið 1. maí en sá leikur verður sýndur beint á Stöð 2 Sport sem og leikir Vals og ÍA og Breiðabliks og KR. Hinir nýliðarnir, Keflavík, mæta Víkingi í Víkinni á sunnudaginn. Önnur umferðin hefst svo föstudaginn 7. maí með leik KR og KA á Meistaravöllum. Afar þétt verður leikið í upphafi móts en fyrstu sjö umferðirnar fara fram á fjórum vikum. Leikjaniðurröðunina má sjá með því að smella hér. 1. umferð Pepsi Max-deildar karla 30. apríl kl. 19:15 Valur - ÍA, Stöð 2 Sport 1. maí kl. 17:00 HK - KA 1. maí kl. 19:15 Fylkir - FH 1. maí kl. 19:15 Stjarnan - Leiknir, Stöð 2 Sport 2. maí kl. 19:15 Víkingur - Keflavík 2. maí kl. 19:15 Breiðablik - KR, Stöð 2 Sport Bikarinn byrjar eftir viku Fótboltasumarið fer formlega af stað næsta föstudag þegar fjórtán leikir fara fram í 1. umferð Mjólkurbikars karla. Keppni í Mjólkurbikarnum átti að hefjast fimmtudaginn 8. apríl en var frestað vegna samkomutakmarkana. Fyrsta umferð Mjólkurbikarsins verður leikin dagana 23.-26. apríl. Önnur umferðin hefst svo föstudaginn 30. apríl, sama dag og keppni í Pepsi Max-deild karla hefst. Liðin í Pepsi Max-deildinni koma inn í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins sem fara fram seinni hlutann í júní. Pepsi Max-deild karla Mjólkurbikarinn Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Formúla 1 NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin Körfubolti Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Sport Bjarni og Guðbjörg endurheimtu bæði Íslandsmeistaratitilinn í CrossFit Sport Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira
Leikurinn átti upphaflega að fara fram sumardaginn fyrsta, 22. apríl, en verður seinkað um rúma viku. Þrír leikir eru á laugardaginn og sunnudaginn eru tveir leikir á dagskránni, meðal annars stórleikur Breiðabliks og KR á Kópavogsvelli. Nýliðar Leiknis sækja Stjörnuna heim laugardagskvöldið 1. maí en sá leikur verður sýndur beint á Stöð 2 Sport sem og leikir Vals og ÍA og Breiðabliks og KR. Hinir nýliðarnir, Keflavík, mæta Víkingi í Víkinni á sunnudaginn. Önnur umferðin hefst svo föstudaginn 7. maí með leik KR og KA á Meistaravöllum. Afar þétt verður leikið í upphafi móts en fyrstu sjö umferðirnar fara fram á fjórum vikum. Leikjaniðurröðunina má sjá með því að smella hér. 1. umferð Pepsi Max-deildar karla 30. apríl kl. 19:15 Valur - ÍA, Stöð 2 Sport 1. maí kl. 17:00 HK - KA 1. maí kl. 19:15 Fylkir - FH 1. maí kl. 19:15 Stjarnan - Leiknir, Stöð 2 Sport 2. maí kl. 19:15 Víkingur - Keflavík 2. maí kl. 19:15 Breiðablik - KR, Stöð 2 Sport Bikarinn byrjar eftir viku Fótboltasumarið fer formlega af stað næsta föstudag þegar fjórtán leikir fara fram í 1. umferð Mjólkurbikars karla. Keppni í Mjólkurbikarnum átti að hefjast fimmtudaginn 8. apríl en var frestað vegna samkomutakmarkana. Fyrsta umferð Mjólkurbikarsins verður leikin dagana 23.-26. apríl. Önnur umferðin hefst svo föstudaginn 30. apríl, sama dag og keppni í Pepsi Max-deild karla hefst. Liðin í Pepsi Max-deildinni koma inn í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins sem fara fram seinni hlutann í júní.
30. apríl kl. 19:15 Valur - ÍA, Stöð 2 Sport 1. maí kl. 17:00 HK - KA 1. maí kl. 19:15 Fylkir - FH 1. maí kl. 19:15 Stjarnan - Leiknir, Stöð 2 Sport 2. maí kl. 19:15 Víkingur - Keflavík 2. maí kl. 19:15 Breiðablik - KR, Stöð 2 Sport
Pepsi Max-deild karla Mjólkurbikarinn Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Formúla 1 NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin Körfubolti Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Sport Bjarni og Guðbjörg endurheimtu bæði Íslandsmeistaratitilinn í CrossFit Sport Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira