Minna en helmingur Bandaríkjamanna segist tilheyra trúarsöfnuði Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. apríl 2021 11:52 Þess ber að geta að þótt fólk tilheyri ekki söfnuði má vera að það sæki engu að síður trúarathafnir. Minna en helmingur fullorðinna Bandaríkjamanna segist tilheyra kirkju, sýnagógu eða mosku, samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Könnunin leiddi í ljós að aðeins 47 prósent tilheyra trúarsöfnuði en hlutfallið var 70 prósent rétt fyrir aldamót.
Könnunin var fyrst gerð árið 1937 en þá sögðust 73 prósent fullorðinna tilheyra trúarsöfnuði. Fækkunin hefur verið mest meðal kaþólikka, þar sem hlutfallið hefur fallið um 18 prósentustig frá aldamótum. Meðal mótmælenda hefur fækkunin numið 9 prósentum á sama tímabili. Demókrötum sem tilheyra söfnuðum hefur fækkað um 25 prósent, repúblikönum um 12 prósent og óháðum um 18 prósent. Heilt á litið eru íhaldsmenn tvöfalt líklegri til að tilheyra trúarsöfnuði en frjálslyndir. Í umfjöllun NPR um málið kemur fram að jafnvel þótt svarendur tilheyri ekki ákveðnum söfnuði kunni vel að vera að þeir sæki trúarlegar athafnir. Þá gildir einu hvaða aldurshópur er skoðaður, í öllum hópum fer þeim fækkandi sem tilheyra söfnuðum. Þátttakendur í könnuninni, sem voru 6.117 talsins, voru valdir af handahófi. Könnunin fór fram á árunum 2018 til 2020.
Bandaríkin Trúmál Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent Skortir lækna í Breiðholti Innlent „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Erlent Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Erlent Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu Erlent Vilja ekki feita innflytjendur Erlent Fleiri fréttir „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Rufu einangrun jaðarhægrisins til að afnema umhverfisreglur Enginn ákærður eftir umdeilt þrjú hundruð manna áhlaup Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Vilja ekki feita innflytjendur Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu BBC biður Trump afsökunar en hafnar bótakröfu Eldar í nær öllum hverfum eftir árásir Rússa á Kænugarð Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi „Áratugur er ekki langur tími fyrir þá sem lifðu af“ „Ég er sá sem getur fellt hann“ Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Minnast þess að tíu ár eru frá hryllingnum í París Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Loftmengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Hafa uppgötvað djöflabýflugu Krefjast tvö þúsund ára fangelsisdóms yfir borgarstjóranum Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Grænlenskir góðmálmar og seinagangur bankanna Sjá meira