Berlusconi á sjúkrahúsi Kjartan Kjartansson skrifar 24. mars 2021 10:21 Silvio Berlusconi er nú 84 ára gamall. Hann hefur lifað af krabbamein í blöðruhálskirtli og kórónuveiruna. Hann er einnig hjartveikur. Vísir/EPA Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, hefur legið á sjúkrahúsi frá því á mánudag. Ekki hefur verið greint frá því hvað plagar Berlusconi en ekki er gert ráð fyrir að hann geti komið fram opinberlega á næstunni.
Berlusconi átti að koma fyrir dómara í Mílanó vegna dómsmáls í morgun. Reuters-fréttastofan hefur eftir heimildarmanni sínum að veikindi Berlusconi séu ekki alvarleg. Annar heimildarmaður úr Áfram Ítalíu, stjórnmálaflokki Berlusconi, segir hann hafa dvalið á heimili sínu í Arcore nærri Mílanó áður en hann var fluttur á sjúkrahús. Þar eigi hann að hvílast um hríð. Veikindi hafa hrjáð Berlusconi undanfarin misseri. Hann var lagður inn á sjúkrahús með hjartavandamál í Mónakó í janúar í fyrra. Í september greindist hann með kórónuveiruna. Hann gekkst undir stóran hjartauppskurð árið 2016 og fékk krabbamein í blöðurhálskirtli. Berlusconi er einn nafntogaðasti og alræmdasti forsætisráðherra í sögu Ítalíu. Hann gegndi embættinu frá 1994 til 1995, 2001 til 2006 og 2008 til 2011. Í stjórnartíð sinni var hann ákærður fyrir ýmsa fjárglæpi og skattsvik. Hann sagði af sér embætti í skugga ákæru fyrir að hafa greitt stúlku undir lögaldri fyrir kynlíf.
Ítalía Tengdar fréttir Berlusconi laus af sjúkrahúsi og hvetur fólk til að taka faraldurinn alvarlega Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu var útskrifaður af sjúkrahúsi þar sem hann var til meðferðar vegna Covid-19. Hann lýsir lífsreynslunni sem „hættulegustu áskorun“ lífs síns og hvetur fólk til þess að taka faraldrinum alvarlega. 14. september 2020 13:08 Berlusconi lagður inn á sjúkrahús Silvio Berlusconi, Evrópuþingmaður og fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, var lagður inn á sjúkrahús í gærkvöldi. Gekkst hann undir rannsóknir, en greint var frá því fyrr í vikunni að hann hafi greinst með kórónuveiruna. 4. september 2020 08:34 Berlusconi yngir verulega upp Silvio Berlusconi fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu er hættur með kærustu sinni til 12 ára, Francescu Pascale. 5. mars 2020 14:55 Mest lesið Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Innlent „Planið“ sé byrjað að virka Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Erlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira
Berlusconi laus af sjúkrahúsi og hvetur fólk til að taka faraldurinn alvarlega Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu var útskrifaður af sjúkrahúsi þar sem hann var til meðferðar vegna Covid-19. Hann lýsir lífsreynslunni sem „hættulegustu áskorun“ lífs síns og hvetur fólk til þess að taka faraldrinum alvarlega. 14. september 2020 13:08
Berlusconi lagður inn á sjúkrahús Silvio Berlusconi, Evrópuþingmaður og fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, var lagður inn á sjúkrahús í gærkvöldi. Gekkst hann undir rannsóknir, en greint var frá því fyrr í vikunni að hann hafi greinst með kórónuveiruna. 4. september 2020 08:34
Berlusconi yngir verulega upp Silvio Berlusconi fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu er hættur með kærustu sinni til 12 ára, Francescu Pascale. 5. mars 2020 14:55