Draga á sama tíma í sextán liða og átta liða úrslit bikarsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2021 10:30 Framkonur unnu Coca Cola bikarinn í fyrra og þær sitja hjá í sextán liða úrslitunum í ár. Vísir/Daníel Þór Handknattleikssamband Íslands mun draga í Coca Cola bikar karla og kvenna í dag en þetta verður óvenjulegur dráttur að þessu sinni.
Í dag verður nefnilega dregið í tvær umferðir í einu, það er bæði í sextán liða og átta liða úrslitin. Vegna nýrrar uppröðunar á tímabilinu vegna kórónuveiruhlésins þá er bikarkeppnin komin á allt annað stað á dagatalinu. Þetta þýðir jafnframt að sextán liða og átta liða úrslitin verða keyrð áfram á aðeins fjórum dögum og því enginn tími til að draga á milli þeirra. Í hádeginu í dag verður því dregið á skrifstofu HSÍ bæði í sextán og átta liða úrslit Coca Cola bikars karla og kvenna. Liðin í sextán liða úrslitum Coca Cola bikars karla eru: Afturelding, FH, Fjölnir, Fram, Grótta, Haukar eða Selfoss, HK, ÍBV, ÍF Mílan, ÍR, KA, Kría, Stjarnan, Valur, Víkingur og Vængir Júpíters. Liðin í sextán liða úrslitum Coca Cola bikars kvenna eru: Afturelding, FH, Fjölnir/Fylkir, Fram, Grótta, Haukar, HK, ÍBV, ÍR, KA/Þór, Selfoss, Stjarnan, Valur og Víkingur. Í sextán liða úrslitum kvenna munu bikarmeistarar Fram sitja hjá í sextán liða úrslitum ásamt því liði sem kemur síðast upp úr pottinum. Sextán liða úrslitin verða leikin 8. og 9. apríl en átta liða úrslitin 10. og 11. apríl. Úrslitavikan með undanúrslitum og úrslitaleikjunum verður síðan spiluð eftir að deildarkeppninni lýkur en áður en úrslitakeppnin hefst. Á morgun, fimmtudag, verður dregið í 16 og 8 liða úrslit Coca Cola bikars karla og kvenna. Dregið verður á skrifstofu...Posted by HSÍ - Handknattleikssamband Íslands on Miðvikudagur, 17. mars 2021
Olís-deild karla Olís-deild kvenna Mest lesið Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn Liverpool vinni ekki deildina haldi liðið áfram á þessari braut Enski boltinn „Ég hélt að við værum komin lengra“ Enski boltinn Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? Enski boltinn Markalaust á Villa Park Enski boltinn Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“ Enski boltinn Englarnir frá LA án sigurs í átta leikjum Fótbolti „Betra er seint en aldrei“ Enski boltinn Dagskráin: Enski boltinn rúllar í DocZone Sport „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun Fótbolti Fleiri fréttir ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Unnu Ungverja og spila við heimamenn um fimmta sætið á HM Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Sárt tap gegn Dönum á HM Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Tap setur Ísland í erfiða stöðu Stelpurnar unnu Noreg á EM og tryggðu sér sautjánda sætið Strákarnir unnu Brassa og fóru áfram með fullt hús Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Sjá meira
Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? Enski boltinn
Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? Enski boltinn