Hyundai kynnir nýjan i20 á morgun Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 12. mars 2021 07:01 Nýr i20. Hyundai á Íslandi kynnir á morgun, laugardag á milli kl. 12 og 16 nýjan og endurhannaðan i20 sem tvívegis hefur unnið Gullna stýrið hjá Auto Bild, nú síðast í nóvember síðastliðnum í flokki bíla sem kosta undir 25 þúsund evrum á Evrópumarkaði. Undir þeim mörkum er nýr i20 sannarlega á Íslandi því Hyundai í Garðabænum býður beinskiptan i20 frá kr. 2.690.000. og sjálfskiptan frá kr. 3.090.000.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá BL. Meiri öryggis- og þægindabúnaður Tæknilega er nýr Hyundai i20 búinn meiri og betri þæginda- og öryggisbúnaði en áður og ennfremur sé miðað við sambærilega bíla af öðrum tegundum í sama stærðar- og verðflokki. Þar á meðal eru aukin öryggiskerfi sem styðja á margvíslegan hátt við öruggari akstur í umferðinni en veita einnig þægilega og örugga aðstoð þegar leggja þarf bílnum í stæði. Innra rými í nýjum i20. Einnig má nefna nýjan rúmlega 10“ upplýsingasnertiskjá í farþegarýminu, þráðlausa símahleðslu, lykillaust aðgengi, aukið útsýni úr farþegarýminu, val um tvílitar útgáfur bílsins og fleira sem dómnefnd Auto Bild nefndi meðal annars sem dæmi um þá miklu alúð við smáatriðin sem Hyundai hefði lagt í hönnun hins nýja i20.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent