Dagur í lífi raunveruleikastjörnu Íslands: Fer í spa og förðun fyrir kokteilinn Stefán Árni Pálsson skrifar 17. febrúar 2021 10:30 Patrekur Jaime er hress og skemmtilegur ungur Akureyringur sem fer sínar eigin leiðir í lífinu. Patrekur Jaime er tvítugur Akureyringur sem hefur slegið í gegn í raunveruleikaþáttunum Æði sem hafa verið aðgengilegir á efnisveitunni Stöð 2+.
Þar er fylgst ævintýrum Patti, Binna Glee og Bassa Maraj. Þættirnir Æði eru líklega þeir fyrstu sinnar tegundar hér á landi þar sem er fylgst með lífi fólks í raunveruleikaþætti. Slíkir þættir eru gríðarlega vinsælir um heim allan og má þar einna helst nefna þættina Keeping up with the Kardashians þar sem fylgst er með Kardashian fjölskyldunni og viðburðaríkum dögum í þeirra lífi. Ísland í dag fékk að fylgjast venjulegum degi í lífi raunveruleikstjörnu á Íslandi. „Ég er bara tvítugur samkynhneigður strákur frá Akureyri sem er að lifa lífinu,“ segir Patrekur Jaime. Þættirnir Æði hófu göngu sína á síðasta ári og voru viðtökurnar mjög góðar en efnið er eitt það vinsælasta á Stöð 2+. Toxic vinasamband „Þetta var bara hugmynd sem ég var búinn að vera með í smá tíma frá því að ég var í grunnskóla því ég var alltaf að horfa á raunveruleikaþætti. Svo árið 2017 byrjaði ég alveg mikið að pæla í þessu og skrifaði upp í skjali hvernig þetta gæti virkað. Ég set mynd af því í Instagram-story og Jóhann Kristófer sem er leikstjórinn af þáttunum sér það og sendir á mig og biður mig um að koma á fund.“ Í hverjum þætti er skapast oft skrautleg umræða á milli vinanna og oft á tíðum sýður allt upp úr. „Ég held að fólk horfi á þetta og hugsi vá hvað þetta er toxic vinasamband og það er það alveg smá, en á sama tíma eru þeir bestu vinir mínir.“ Það fór vel um Patta í Laugum Spa. Ekki hafa verið framleiddir margir raunveruleikaþættir á Íslandi þar sem fylgst er með lífi fólks og því lá beinast við að spyrja, hvernig er að vera raunveruleikastjarna á Íslandi? „Það er geðveikt skrýtið en mjög gaman á sama tíma. Mér finnst smá eins og Ísland sé ekki tilbúið í það að það sé komið raunveruleikasjónvarp hingað. Það búast allir við því að þetta sé geðveikt feik og gæti ekki flokkast undir raunveruleikasjónvarp ef þetta væri leikið. Þetta er nefnilega ekki leikið og ég fæ svo oft að heyra að fólk sjái okkur vera lesa handrit en ég hef aldrei fengið neitt handrit á setti. Maður veit alveg smá hvað er skemmtilegt og ég er alveg að fara rífast við Bassa upp á grínið, þó ég sé smá pirraður læt ég mig bara verða extra pirraðan yfir því.“ Patti segist alveg verða fyrir áreiti þegar hann fer í bæinn að kvöldi til en mestmegnis jákvæða athygli. „Maður lendir alveg í því að það er einhver sem er búinn að drekka aðeins of mikið og byrjar að bulla. Það er samt ekkert pirrandi en ég er samt meira að fá fría drykki. Við vorum um daginn á Pedersen svítunni og vorum með reikning upp á 60 þúsund og það kom einhver maður og borgaði það fyrir okkur, einhver karl.“ Hlakkar til að fá sér bótox Eftir góða slökun í spa fer Patrekur í förðun hjá einkaförðunarfræðingi sínum og var förinni því næst haldið upp í efra Breiðholt þar sem Ester Olga Mondragon tók vel á móti honum. „Ég hef bara látið laga á mér eyrun og oft farið í varafyllingar,“ segir Patrekur sem segist hlakka til að fá sína fyrstu hrukku. „Mig langar svo mikið í bótox, ég held að það sé æði að geta ekki hreyft ennið.“ Í þáttunum Æði má sjá Patrek í allskonar aðstæðum en hann lifir greinilega lúxuslífi, þar sem kokteillinn er aldrei langt undan og stundum mikið djamm. „Ég hef ekki drukkið neitt í einn og hálfan mánuð og ákvað að drekka ekkert allan janúar og ekki um áramótin. Ég held að ef þú ferð edrú inn í árið verður það betra,“ segir Patrekur sem stefnir að því að gefa út kokteilabók. Hann langar að taka þátt í fleiri raunveruleikaþáttunum og á einn sérstakan draum. „Ég myndi elska að fara í Allir geta dansað út af því að ég veit að ég gæti unnið það. Ég væri líka til í að gera fleiri þætti sem væri ekki Æði. Mig langar smá að senda mig, Binna og Bassa út í sveit eða út á sjó og taka það upp. Vera að vinna þar og sjá hvað gerist.“ Patti segist í raun ekki vera fyrirmynd. „Mér finnst ég alveg stundum vera fyrirmynd en vill samt ekkert endilega að litlir krakkar séu að herma eftir því sem ég er að gera. Ég er alveg smá tæpur í lífinu.“
Æði Ísland í dag Bíó og sjónvarp Mest lesið Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Fleiri fréttir Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Sjá meira