Segir skilið við Venstre Atli Ísleifsson skrifar 4. febrúar 2021 09:34 Inger Støjberg var formaður innflytjendamála í Danmörku á árunum 2015 til 2019. EPA/OLIVIER HOSLET Inger Støjberg, þingkona Venstre í Danmörku og fyrrverandi ráðherra innflytjendamála, hefur skráð sig úr flokknum. Hún heldur áfram á þingi sem óháður þingmaður.
Støjberg segir í samtali við Skive Folkeblad að ákvörðunin hafi verið mjög erfið en að þetta sé það eina í stöðunni. Besta leiðin fyrir hana til að berjast fyrir þeim gildum sem hún stendur fyrir sé að halda áfram sem óháður þingmaður. Ákörðunin kemur í kjölfar þess að meirihluti þingmanna danska þingsins samþykkti tillögu um að Støjberg skuli stefnt fyrir Ríksrétt. Stór hluti þingflokks Venstre greiddi atkvæði með tillögunni, formaðurinn þar með talinn. Rannsóknarnefnd þingsins tilkynnti í síðasta mánuði að Støjberg hafi í ráðherratíð sinni, árið 2016, gefið út ólögleg tilmæli um að láta aðskilja gifta hælisleitendur sem væru yngri en átján ára við komuna til Danmerkur. Náði ákvörðunin til 23 para. Atkvæði voru greidd fyrr í vikunni um það hvort Støjberg skildi ákærð fyrir Ríkisrétt, sem svipar til Landsdóms hér á landi, og var það samþykkt með atkvæðum 139 þingmanna en þrjátíu þingmenn greiddu atkvæði gegn tillögunni. Í viðtali við Skive Folkeblad segir Støjberg að hún hafi ekki náð tengslum við nýjan formann flokksins, Jakob Elleman-Jensen, sem tók við formennsku af Lars Løkke Rasmussen á þarsíðasta ári. Støjberg sagði af sér varaformennsku í flokknum í síðasta mánuði.
Danmörk Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Fleiri fréttir Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Sjá meira