Ólafur Ingi tekinn við tveimur landsliðum Sindri Sverrisson skrifar 21. janúar 2021 16:29 Ólafur Ingi Skúlason er hættur hjá Fylki. vísir/bára Ólafur Ingi Skúlason hefur verið ráðinn nýr þjálfari U19-landsliðs karla og U15-landsliðs kvenna í fótbolta en Knattspyrnusamband Íslands staðfesti þetta í dag.
Ólafur Ingi var leikmaður og aðstoðarþjálfari karlaliðs Fylkis í Pepsi Max-deildinni á síðustu leiktíð en eins og mbl.is greindi frá í gær er hann nú hættur störfum í Árbænum til að einbeita sér að starfi sínu hjá KSÍ. Þjálfun Fylkis er því í höndum Atla Sveins Þórarinssonar og Ólafs Inga Stígssonar. Ólafur Ingi lék á sínum tíma 36 A-landsleiki og skoraði í þeim eitt mark. Hann var meðal annars í hópnum sem fór á HM í Rússlandi 2018. KSÍ hefur ráðið Ólaf Inga Skúlason sem nýjan þjálfara U19 landsliðs karla og U15 landsliðs kvenna og hefur hann þegar hafið störf. https://t.co/CN4O41Wny8— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) January 21, 2021 Ólafur Ingi, sem verður 38 ára í vor, á að baki langan feril sem atvinnumaður sem hófst hjá Arsenal árið 2001. Hann lék í Englandi, Svíþjóð, Danmörku, Belgíu og Tyrklandi áður en hann kom heim til Fylkis á HM-árinu 2018. KSÍ mun vera að ganga frá ráðningu Davíðs Snorra Jónassonar, sem stýrði U19-landslið karla á undan Ólafi, í stöðu þjálfara U21-landsliðsins. Arnar Þór Viðarsson, sem stýrði U21-landsliðinu áfram úr undankeppni EM, var ráðinn þjálfari A-landsliðsins rétt fyrir jól.
KSÍ Pepsi Max-deild karla Fylkir Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Handbolti Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Enski boltinn Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Enski boltinn „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Enski boltinn Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Enski boltinn Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira