Farið yfir það helsta í Vodafone deildinni hingað til Samúel Karl Ólason skrifar 20. apríl 2020 17:25
Vodafone deildin í leikjunum Counter Strike: Global Offensive og League of Legends hefur nú staðið yfir í fjórar vikur og þrjár vikur eftir af fyrsta tímabilinu. Því er tilefni til að renna yfir það helst sem hefur átt sér stað í Vodafone deildinni á þessum tíma. Kristján Einar Kristjánsson, Tómas Jóhannsson og Halldór Már Kristmundsson, sérfræðingar Vodafone Deildarinnar, fá til sín góða gesti, ræða mál málanna og svara spurningum sem brenna á allra vörum. Hvaða lið hefur komið á óvart? Hvaða lið hefur ekki verið að standa sig? Hvaða spilarar eru að skara framúr? Hver er mest spennandi leikur mótsins hingað til? Eins og staðan er núna, þá eru TurboApes United í efsta sæti í LoL-deildinni og Fylkir í efsta sæti í CSGO. Nánar um stöðuna í deildunum má sjá hér (LoL) og hér (CSGO). Eftir þrjár vikur, þegar deildarmeistararnir verða krýndir munu öll lið landsins fá tækifæri til að sanna að þau eigi heima með þeim bestu og er hægt að skrá þau í lokamótið. Þátturinn hefst klukkan 17:45 á Stöð 2 eSport. Sömuleiðis má horfa á hann hér að neðan. Seinna í kvöld, eða klukkan átta, verður svo sýnd viðureign Kr.Black og Þórs í CSGO.
Vodafone-deildin Rafíþróttir Leikjavísir Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti