Aftonbladet velur Ísak Bergmann efnilegasta leikmanninn í Svíþjóð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2020 10:15 Ísak Bergmann Jóhannesson í leik með sautján ára landsliðinu á móti Þýskalandi. Getty/Alex Grimm
Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson, sem er búinn að vinna sér sæti i aðalliði IFK Norrköping, er í efsta sætinu á lista yfir efnilegustu leikmenn sænsku úrvalsdeildarinnar hjá sænska blaðinu Aftonbladet. Leikmenn sem komu til greina í vali Aftonbladet eru leikmenn sem eru fæddir 2001, 2002 og 2003 eða leikmenn sem eru á bilinu sautján til nítján ára. Fótbolti.net segir frá því að Aftonbladet hafi sett íslenska unglingalandsliðsmanninn í fyrsta sætið. Ísak Bergmann talinn efnilegasti leikmaðurinn í Svíþjóð https://t.co/qU5iq7gLXh— Fótbolti.net (@Fotboltinet) March 19, 2020 Ísak Bergmann Jóhannesson er fæddur 23. mars 2003 og verður því ekki sautján ára fyrr en í byrjun næstu viku. Ísak Bergmann Jóhannesson kom til Svíþjóðar frá ÍA en hann er sonur Jóhannesar Karls Guðjónssonar, þjálfara Pepsi Max deildar liðs ÍA. Ísak kom til Norrköping í fyrrasumar og fékk þá sínar fyrstu mínútur en á komandi tímabili er búist við því að hann vinni sér sæti í byrjunarliði liðsins. Ísak Bergmann skoraði meðal annars í sigri Norrköping á Breiðabliki í æfingarleik á dögunum en Blikarnir fóru þá í æfingaferð til Svíþjóðar. „Efnilegasti leikmaðurinn í sænsku úrvalsdeildinni síðan Kim Kallström kom fram á sjónarsviðið," segir meðal annars í umsögn Aftonbladet. Ísak Bergmann Jóhannesson valdi það að fara til liðs þar sem hann gæti fengið fljótt ábyrgðarhlutverki hjá meistaraflokksliði í stað þess að fara í stærra félag þar sem hann yrði að sætta sig við að spila lengur með unglingaliði.
Sænski boltinn Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Handbolti Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Enski boltinn Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Lewis Hamilton segist vera fastur í martröð Formúla 1 Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Enski boltinn Fleiri fréttir Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Stelpurnar okkar byrja á erfiðasta glugga sögunnar Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Sjá meira