Formúla 1 hefur þróað 100% sjálfbært eldsneyti Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 21. desember 2020 07:01 Ross Brawn er yfirmaður kappakstursmála hjá Formúlu 1. Vísir/Getty Formúla 1 hefur þróað 100% sjálfbært eldsneyti úr lífrænum úrgangi. Eldsneytið er í prófunum hjá liðum í Formúlu 1 um þessar mundir.
Formúla 1 hefur þróað 100% sjálfbært eldsneyti úr lífrænum úrgangi. Eldsneytið er í prófunum hjá liðum í Formúlu 1 um þessar mundir. Formúla 1 hefur skuldbundið sig til að notast áfram við tvinn-vélar, þegar nýjar vélareglur verða kynntar í síðasta lagi fyrir tímabilið 2026. Stór þáttur í auknum áherslum Formúlu 1 á minnka kolefnaspor sitt er eldsneytið sem notað er. FIA, alþjóða akstursíþróttasambandið mun krefjast þess að hærra hlutfall af eldsneytinu sem notað er verði lífefna-eldsneyti innan skamms. Þegar reglurnar fyrir næstu kynslóð véla verða kynntar er hugmyndin að nota eingöngu sjálfbært eldsneyti. Vélaframleiðendur í Formúlu 1 hafa fengið eldsneytið til prófanna og hafa verið beðnir um að kanna hvort það sé nothæft til kappaksturs. Ross Brawn, yfirmaður kappakstursmála hjá Formúlu 1 hefur sagt að „Formúla 1 hefur lengi verið vettvangur þar sem nýjar kynslóðir tæknilegra lausna fyrir bílaiðnaðinn verða til.“ Ef eldsneytið reynist nothæft þá er afar líklegt að tæknin geti verið notuð til að minnka umhverfisáhrif fólksbifreiða til muna. Sem dæmi um tækni sem var fyrst kynnt til sögunnar í Formúlu 1 en hefur síðar skilað sér í almenna fólksbíla eru ABS hemlakerfi og spólvörn.
Vistvænir bílar Formúla Mest lesið Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent