Land Rover Defender 110 með 5 stjörnur hjá Euro NCAP Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 11. desember 2020 07:01 Land Rover Defender 110 á ferð. Nýr Land Rover Defender 110 hlaut á dögunum hæstu einkunn hjá Euro NCAP fyrir framúrskarandi öryggi.
Meðal þátta í einkunninni má nefna 85 stig fyrir góða vernd fullorðinna og barna í farþegarýminu, 79 stig fyrir góðan öryggisaðstoðarbúnað bílsins og hlaut Defender í aðaleinkunn 5 stjörnur fyrir gott alhliða öryggi, sem innifelur m.a. sjálfvirka neyðarhemlun til að varna árekstri við aðra bíla, fótgangandi eða hjólandi vegfarendur sem búnaðurinn ber kennsl á. Defender hefur frá því að bíllinn var kynntur unnið til 28 alþjóðlegra viðurkenninga og eru fimm stjörnur Euro NCAP enn ein skrautfjöðrin í hatt hönnuða bílsins sem er sterkasti og öflugasti Defender sem Land Rover hefur smíðað frá upphafi. Sem dæmi má nefna sérstaklega styrktan undirvagn og yfirbyggingu sem hvort tveggja er hannað til þess að takast á við sérstaklega erfiðar aðstæður af miklu öryggi í þágu ökumanns og farþega, hvort sem er utan alfaraleiða eða krefjandi umferð í þéttbýli. Á BL.is er hægt að kynna sér tæmandi upplýsingar um framúrskarandi öryggisbúnað sem fáanlegur er með nýjum Land Rover Defender.
Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent Skortir lækna í Breiðholti Innlent „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Erlent Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Erlent Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu Erlent Vilja ekki feita innflytjendur Erlent