Tuttugu hljómsveitir og listamenn hljóta tilnefningu til Kraumsverðlauna Stefán Árni Pálsson skrifar 30. nóvember 2020 16:04 Auður og GDRN sem sem voru meðal þeirra listamanna og hljómsveita sem hlutu Kraumsverðlaunin 2018. Kraumsverðlaunin verða afhent í þrettánda sinn í næsta mánuði þar sem verðlaun verða veitt fyrir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika.
Meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa verðlaunin til þessa eru Auður, Cell7, Daníel Bjarnason, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Lay Low, Mammút, Ólöf Arnalds, Retro Stefson og Sóley. Dómnefnd verðlaunanna hefur nú valið tilnefningar til Kraumsverðlaunanna í ár, hinn svokallaða Kraumslista, og þar er að finna tónlist úr öllum áttum. Tuttugu hljómsveitir og listamenn eru tilnefnd fyrir plötur sínar í ár, meðal annars Bríet, Cyber, Gugusar og Yagya. Á listanum má finna hinar ýmsu tónlistarstefnur og strauma; popp og rokktónlist, teknó, hip hop, jazz, tónverka- og tilraunatónlist. Greinilegt er að mikil gróska er í íslensku tónlistarlífi hvað útgáfurstafsemi varðar, enda fór dómnefndin yfir og hlustaði á 439 hljómplötur og útgáfur sem komu út á árinu við val sit. Hún mun nú velja sex breiðskífur af þeim sem nú hafa verið tilnefndar er hljóta munu Kraumsverðlaunin 2020. Kraumsverðlaunum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa rúmlega sjötíu listamenn og hljómsveitir hlotið verðlaunin fyrir plötur sínar, flestir snemma á ferli sínum. Það er Aurora velgerðarsjóður sem stendur að Kraumsverðlaununum. Tilnefningar til Kraumsverðlaunanna 2020: • 0 - Entity • Andartak - Constructive Metabolism • Asalaus -Asaleysing • Bára Gísla - HIBER • Bríet - Kveðja, Bríet • Buspin Jieper - VHS Volcanic / Harmonic / Sounds • Celebs - Tálvon hinna efnilegu • Cyber - Vacation • Gugusar – Listen to this Twice • Ingibjörg Turchi - Meliae • K.óla - Plastprinsessan • Magnús Jóhann - Without Listening • Mengun - Þrettán tólf • Salóme Katrín - Water • Skoffín - Skoffín hentar íslenskum aðstæðum • Supersport! - Dog Run EP • Tucker Carlson's Jonestown Massacre - Ingilín • Ultraflex - Visions of Ultraflex • Volruptus - First Contact • Yagya - Old Dreams And Memories DÓMNEFND Kraumslistinn og Kraumsverðlaunin eru valin af níu manna dómnefnd skipuð fólki með margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður), Arnar Eggert Thoroddsen, Helga Þórey Jónsdóttir, Lovísa Rut Kristjánsdóttir, Maria Lilja Thrastardottir Kemp, Óli Dóri, Rósa Birgitta Ísfeld, Trausti Júlíusson og Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir. KRAUMUR OG AURORA VELGERÐARSJÓÐUR Aðstandandi Kraumslistans og Kraumsverðlaunanna er tónlistarsjóðurinn Kraumur sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðasjóðs. Kraumur hefur það að meginhlutverki að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Auk þess að starfrækja Kraum styður Aurora velgerðarsjóður við þróun og menningu hérlendis sem erlendis í gegnum margvísleg verkefni sem er ætlað að örva samfélög á sjálfbæran máta.
Tónlist Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Osaka best klædd á Wimbledon Tíska og hönnun Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira