Jóladagatal Samgöngustofu hefst á morgun Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 30. nóvember 2020 07:00 Erlen umferðarsnillngur og jóladagatalið. Jóladagatal Samgöngustofu hefur göngu sína á morgun, 1. desember. Að þessu sinni verður spurt úr þáttunum Úti í umferðinni þar sem Erlen umferðarsnillingur rifjar upp helstu umferðarreglurnar. Sérstök keppni er fyrir bekki grunnskóla.
Á hverjum degi til jóla birtist ný spurning sem hægt er að svara og um leið komast í verðlaunapott en tveir heppnir þátttakendur eru dregnir út á hverjum degi og fá þeir veglegan endurskinspoka sendan heim. Þetta kemur fram á vefsíðu Samgöngustofu. Jóladagatalið má nálgast hér. Bekkjarverðlaun fyrir grunnskólanemendur Auk þess geta þátttakendur merkt svör sín með nafni bekkjar og skóla en þannig kemst bekkurinn í sérstakan bekkjarverðlaunapott. Að lokum verður svo einn heppinn bekkur dreginn út og hlýtur hann að launum nokkur skemmtileg borðspil, pítsuveislu og óvæntan glaðning fyrir umsjónarkennarann. Samgöngustofa hvetur alla til að taka þátt í jóladagatalinu, sem er í senn skemmtilegt og fræðandi.
Jól Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent Skortir lækna í Breiðholti Innlent „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Erlent Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Erlent Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu Erlent Vilja ekki feita innflytjendur Erlent