Eyja Lacasse skoraði fyrir Benfica í Meistaradeildinni í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2020 16:01 Cloé Lacasse hefur heldur betur verið á skotskónum í Portúgal. Mynd/Instagram/cloe_lacasse
Cloé Lacasse var á skotskónum með portúgalska liðinu SL Benfica í Meistaradeildinni í knattspyrnu í dag. Cloé Zoé Eyja Lacasse, eins og hún heitir núna fullu nafni í bókum UEFA, skoraði annað mark Benfica í 3-1 útisigir á PAOK frá Grikklandi. Á úrslitasíðu UEFA er nafn hennar stytt og þar má sjá að Eyja Lacasse hafi skorað fyrir Benfiva á 44. mínútu sem er örugglega skemmtileg sjón fyrir Eyjamenn sem telja sig örugglega eiga svolítið í henni. Skjámynd/UEFA.com Cloé Lacasse skoraði markið sitt rétt fyrir hálfleik og kom Benfica þar með í 2-0 eða í lykilstöðu í leiknum. PAOK minnkaði muninn á 57. mínútu en aðeins fjórum mínútum síðar innsiglaði Catarina Amado 3-1 sigur. Benfica er þar með komið áfram í aðra umferð forkeppni Meistaradeildar kvenna. Cloé Lacasse fékk íslenskt ríkisfang í júní 2019 og tók þar upp Eyju nafnið til heiðurs Vestmannaeyjum þar sem hún spilaði með ÍBV liðinu frá 2015 til 2019. Cloé Lacasse skoraði 54 mörk í 79 leikjum fyrir ÍBV í efstu deild á Íslandi og hefur skorað 32 mörk í fyrstu 26 deildarleikjum sínum með Benfica. Leikurinn í dag var aftur á móti fyrsti leikur Cloé í Meistaradeildinni.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Guðlaug Edda á von á barni Sport Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Enski boltinn Bandaríska landsliðið var niðurlægt í seinni hálfleik Fótbolti Handa- og fótalaus en sakaður um morð Sport Gaf stoðsendingu á son sinn og setti enn eitt metið Körfubolti Sjáðu mörkin hans Orra: Ungi fyrirliðinn okkar mætti aftur með stæl Fótbolti Átta leikmenn yfirgefa enska landsliðshópinn Enski boltinn „Við þurfum að læra að klára þessa leiki“ Fótbolti Tómas Valur skiptir um skóla í Bandaríkjunum Körfubolti Guðjón Valur og strákarnir hans unnu áttunda leikinn í röð Handbolti Fleiri fréttir Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Bandaríska landsliðið var niðurlægt í seinni hálfleik Átta leikmenn yfirgefa enska landsliðshópinn „Við þurfum að læra að klára þessa leiki“ Sjáðu mörkin hans Orra: Ungi fyrirliðinn okkar mætti aftur með stæl Aberdeen semur við Eyja-Elvis Senegalar fögnuðu titlinum sem er búið að taka af þeim Leik lokið: Kanada - Ísland 2-2 | Jafntefli í Toronto Orri Steinn byrjar og er með fyrirliðabandið Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Blikar léku við hvurn sinn fingur í úrslitaleiknum Heiða Ragney skoraði í fyrsta leik City fór langt með að tryggja titilinn í stórsigri gegn United Tuttugu mínútna seinkun á landsleiknum Glódís óheppin að skora ekki í tvígang Spila fótboltaleik með fjórum leikhlutum í fyrsta sinn Baulað á Ben White: „Við stöndum með honum“ Sveindís meiddist næstum því þegar hún fagnaði glæsimarki Tvítug knattspyrnukona lést Áfall fyrir Barcelona Unnu þrjátíu núll í færeysku Meistaradeildinni Vinícius Júnior: Brasilía er ekki eitt af sigurstranglegustu liðum HM Gulir og glaðir orðnir fjólubláir aftur Messi er ekki enn búinn að ákveða sig Ben White úr hetju í skúrk á nokkrum mínútum Florian Wirtz með stórleik í sigri Þjóðverja Viðar með þrennu í fyrri hálfleik í bikarsigri Þór vann Kjarnafæðimótið eftir sextán víta vítakeppni Óvænt byrjunarlið hjá enska landsliðinu í kvöld Leicester City tapaði næstum því tólf milljörðum á einu tímabili Selur húsið sitt til að komast á HM í fótbolta Sjá meira