Fimm ára stúlka lést í bílslysi: Ökumaðurinn flúði vettvang Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 28. október 2020 17:30 Lögreglan í Kaupmannahöfn leitar ökumannsins víðsvegar um borgina en hann flúði hlaupandi af vettvangi. Getty
Lögreglan í Kaupmannahöfn lýsir eftir ökumanni bifreiðar sem varð fimm ára stúlku að bana í alvarlegu umferðarslysi síðdegis í dag. Ekið var á stúlkuna og móður hennar þar sem mæðgurnar voru á gangi við Peter Bangs-veg í Frederiksberg um klukkan fjögur að staðartíma í dag. Ökumaðurinn stakk af af vettvangi og er hans nú leitað en hann mun vera um 21 árs gamall, með dökkt hár, um 180 sentimetrar á hæð, klæddur í svört föt. „Ökumaðurinn hljóp af vettvangi og við leggjum kraft í leitina að honum,“ segir Kristian Rohdin lögregluvarðstjóri í samtali við TV 2. Ökumannsins sé nú leitað á stórhöfuðborgarsvæði Kaupmannahafnar. Vitni eru hvött til að hafa samband við lögreglu. Að svo stöddu kvaðst lögregla ekki geta veitt frekari upplýsingar um líðan móðurinnar en hún gat að sögn lögreglu tjáð sig á slysstað. Ung mand fører af køretøjet er flygtet fra stedet. Han beskrives som, mand, ca. 21 år med mørkt hår, 180 cm høj, alm af bygning og iført sort tøj. Vi søger offensivt flere steder i hovedstadsområdet. #politidk— Københavns Politi (@KobenhavnPoliti) October 28, 2020
Danmörk Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Fleiri fréttir Hæstaréttardómarar fjarlægðu flein úr holdi Bandaríkjaforseta Lífstíðarfangelsi fyrir að myrða 14 ára dreng með samúræjasverði Finna fyrir fjarveru Bandaríkjanna á loftslagsfundi en sakna þeirra ekki Ungar konur særðust í skotárás í Nuuk Sá sem samdi Mission: Impossible lagið er látinn Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Dönsk stjórnvöld vilja tryggja fólki höfundarrétt að eigin persónu Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Segir Spánverja munu borga fyrir að borga ekki nóg Lögðu grunninn að „sterkara, sanngjarnara og banvænna“ NATO Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Biðst afsökunar á gyðingahatri Svíþjóðardemókrata Diddy ætlar ekki að bera vitni Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Sjá meira