Andri Fannar fékk átján mínútur gegn Lazio, M-in tvö afgreiddu Dijon og Suarez á skotskónum Anton Ingi Leifsson skrifar 24. október 2020 21:13 PSG menn fagna í kvöld. Þægilegur sigur hjá þeim eftir erfiðan Evrópuleik í miðri viku er liðið tapaði á heimavelli fyrir Man. Utd. Xavier Laine/Getty Images
Andri Fannar Baldursson kom inn á sem varamaður á 72. mínútu er Bologna tapaði 2-1 fyrir Lazio á útivelli í ítalska boltanum. Bologna skoraði fyrsta mark leiksins á 13. mínútu en það var svo dæmt af eftir skoðun í VAR. Staðan var markalaus í hálfleik en Luis Alberto kom Lazio yfir á 54. mínútu. Þannig stóðu leikar allt þangað til á 76. mínútu er Ciro Immobile tvöfaldaði forystuna en í uppbótartíma minnkaði Lorenzo De Silvestri stöðuna. Þar við sat. Bologna er einungis með þrjú stig eftir fyrstu fimm leikina en Lazio er í 10. sætinu með sjö stig. PSG lenti ekki í neinum vandræðum með Dijon á heimavelli. Moise Kean, sem er á láni hjá PSG frá Everton, skoraði tvö fyrstu mörkin og Kylian Mbappe bætti við tveimur í síðari hálfleik. PSG er með átján stig eftir átta leiki en Dijon er á botninum með tvö stig. Atletico Madrid vann svo 2-0 sigur á Real Betis. Marcos Llorente kom Madrídingum yfir á fyrstu mínútu síðari hálfleiks og Luis Suarez tvöfaldaði forystuna í uppbótartímanum. Atletico er í 2. sætinu með ellefu stig, tveimur stigum á eftir grönnunum í Real en Atletico á leik til góða. Betis er í tíunda sæti deildarinnar.
Spænski boltinn Ítalski boltinn Franski boltinn Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Gri/Nja - Fram | Gætu endað hlið við hlið í kvöld Víkingur - Borac | Slagur um Sambandsdeild og hundruð milljóna Daníel biðst lausnar: „Malmö vill ekki sleppa mér“ Cancelo mættur til Barcelona en bíður eftir skráningu Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Sjá meira