Bjartsýni bersýnileg í byrjun en breytist hratt eftir sem líður á Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 15. september 2020 15:30 Logi Marr gaf á dögunum út EP plötu, sem fengið hefur góðar viðtökur. Aðsend mynd „
Þetta er smá „concept“ plata, hún er hugsuð svolítið sem eitt kvöld. Þar sem ákveðin bjartsýni er bersýnileg í byrjun en breytist hratt eftir sem líður á. Þarna er hugsunin að setja stærra hugtak, lífið eða ástina, í form kvölds,“ segir Logi Marr í samtali við Vísi. Tónlistarmaðurinn gaf á dögunum út sóló verkefni, EP plötuna ..to be Frank undir nafninu MarProject. Logi hefur verið með hljómsveitum eins og Lily of the valley, Shakes og BOY. Einvala lið hljóðfæraleikara skreytti hugmyndir Loga með sínum fingraförum og úr varð skemmtilegt og vandað verk. Með Loga á plötunni eru Krístín Mjöll Johnsen, Þorsteinn Einarsson, Magnús Jóhann Ragnarsson, Jón Rúnar Ingimarsson, Elvar Bragi og Leó Ingi. Friðrik Atli Sigfússon pródúseraði plötuna. Joseph Broderick, fyrir lagið Shangri-laAðsend mynd/Joseph Broderick Fullkomlega hreinskilinn „Tónlistin sjálf er taktföst indí tónlist. Jón Rúnar trommuleikari er frændi minn og við komum úr mikilli trommu fjölskyldu svo okkur langaði að kafa vel í taktpælingar sem er greinilegt element í verkinu. Kristín Mjöll túlkaði svo orð mín einnig með sinni frábæru rödd sem tengir þetta betur inn í tilfinninga-indí,“ segir Logi um plötuna. „Fyrst í ferlinu að gera þessa plötu skrifaði ég smásögu sem ég skírði Frank. Sagan var skrifuð sem bréf til föður heitkonu og þessi saga sat í okkur lengi vel í „prósessnum“. Friðrik Atli pródúser vann svo einnig mikla vinnu í ferlinu að vinna niður ýmsar grímur hjá mér sem voru timburmenn annarra verkefna, þar sem leikrænir tilburðir voru meiri en við vorum að reyna að skila í þessu verkefni. Það gekk honum vel og skilar sér í mjög heiðarlegu samtali. Þá fannst okkur tilvalið að fara í orðaleik með þetta og skíra plötuna ..to be Frank, bæði hægt að túlka það sem föður stúlkunnar í smásögunni eða orðatiltækið to be frank, að vera fullkomlega hreinskilinn,“ segir Logi um nafnið. Pælingin á bak við nafn plötunnar er því tvíþætt. Thelma Björk fyrir lagið Molly JensenAðsend mynd/Thelma Björk Tónleikaferðalagið þarf að bíða „Platan hefur fengið góða dóma og fyrsti singúll plötunnar, Shangri-la, hefur setið á vinsældarlista Rásar 2 í sjö vikur samfleytt. Plötunni hefur verið lýst sem vönduðu og þægilegu verki. Annars finnst mér hún líka ágæt,“ segir Logi. Logi hefur unnið með litlu útgáfufyrirtæki í Leeds undanfarin ár og upprunalega var planið að gefa plötuna út þar og spila. „En sökum ástands er það eitthvað sem þarf aðeins að bíða. Marproject er samt beðið með mikilli eftirvæntingu þar svo um leið og mögulegt er verður hlaðið í smá Bretlands túr. Airwaves var vissulega annað sem var spenningur yfir en vonandi getum við tekið þátt á næsta ári í staðin. Þangað til getur fólk bara kveikt á Spotify eða vel völdum útvarpsstöðvum.“ Listamenn túlkuðu lögin Frá byrjun vann Logi með þremur listamönnum að því að gera listaverk með þeim þremur lögum á plötunni í fullri lengd. Listamennirnir fengu aðgang að hugmyndum og textum frá byrjun og túlkuðu sín verk algjörlega út frá hverju lagi, ótengt heildinni. Loga langaði að sjá hvort að einhver rauður þráður sæist á milli þessara listamanna þegar að eina þeir áttu sameiginlegt var að hafa aðgang að hans lögum. „Nú dæmi hver fyrir sig.“ Embla Örk, fyrir lagið ListlessAðsend mynd/Embla Örk Hægt er að hlusta á plötuna í heild sinni á Spotify. „Ég vil þakka tónlistarfólkinu og listamönnunum sem tóku þátt í þessu með mér ævinlega. Vil líka benda á að platan parast vel með góðum Pinot Noir, njótið,“ segir Logi að lokum.
Tónlist Mest lesið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Fleiri fréttir Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira