Selma, Björk og Salka Sól setja á svið grínverk um konur Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 9. september 2020 10:09 Selma Björnsdóttir, Björk Jakobsdóttir og Salka Sól Eyfeld vinna að verki fyrir Gaflaraleikhúsið. Samsett mynd
Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði byrjar leikárið af krafti og mun frumsýna tvö ný verk ásamt því að halda áfram sýningum á Mamma klikk og endurfrumsýna sýninguna Fyrsta skiptið. Nýju verkin eru Reykfari eftir eftir Anthony Schaffer með þeim Jóel Sæmundssyni og Bjartmar Þórðarsyni og Bíddu bara, sýning eftir Selmu Björnsdóttur, Björk Jakobsdóttur og Sölku Sól Eyfeld. „Oft höfum við hlakkað til en aldrei eins og núna,“ segir Lárus Vilhjálmsson framkvæmdastjóri Gaflaraleikhússins. Selma, Salka Sól og Björk hafa allar mikla reynslu af stóra sviðinu og ætla þær að semja grínverk ásamt því að leika og syngja í því saman. „Eins og allir þá erum við alveg komin með upp í kok af Covid og hoppuðum því hæð okkar af gleði þegar nýju samkomureglurnar voru tilkynntar. Nú ríður á að útfæra þær vel svo að við þurfum ekki að herða reglur aftur.“ Gaflaraleikhúsið fjárfesti nýlega í bíósætum frá Laugarásbíó. „Sem eru eflaust stærstu og mýkstu áhorfendasæti í leikhúsi á Íslandi. Eftir nákvæmar mælingar þá er sannarlega metri á milli sætaraða og metri á milli áhorfendahópa ef eitt sæti er autt á milli. Eins erum við með stórt andyri og getum auk þess opnað út í port. Sprittbrúsar verða svo í boði eins og allir geta á sig látið. Þannig getum við tekið á móti rúmlega 100 áhorfendum og hrópum því eins metra húrra og hefjum leik að nýju.“ Valgerður Guðna aftur á svið Haustönn leikhússins byrjar á því að sýningar hefjast að nýju á verðlaunverkinu MAMMA KLIKK! eftir Gunnar Helgason og Björk Jakobsdóttur. „Verkið var sýnt við fádæma vinsældir síðasta leikvetur og komust færri að en vildu. Sýningin var valin leiksýning ársins á Sögum, Verðlaunahátíð barnanna á RÚV á síðasta ári og fékk Grímutilnefningu sem besta fjölskyldusýning ársins auk þess sem Valgerður Guðnadóttir fékk tilnefningu sem söngkona ársins en hún leikur auðvitað sjálfa Mömmu klikk! Þetta eru tveir tímar af vönduðu fjölskylduefni sem kitlar hláturtaugarnar og hlýja hjartanu og það er akkúrat eitthvað sem allar fjölskyldur þurfa nú um mundir,” segir um sýninguna. Í október verður frumsýnd gestasýningin REYFARI eftir Anthony Schaffer með þeim Jóel Sæmundssyni og Bjartmar Þórðarsyni. „Þetta er alvöru krimmi með góðum skammti af spennu og hlátrum.“ Ellismellir og óléttukvíðasjúklingar Í janúar frumsýnir Gaflaraleikhúsið svo glænýtt íslenskt grínverk um konur á öllum aldri. Sýningin kallast BÍDDU BARA! og er leikið og sungið grín um konur á öllum aldri. „Það er sérstök ánægja að tilkynna hvaða stórbombur taka þátt í verkinu. Það eru þær Selma Björns, Salka Sól og Björk Jakobs sem munu semja, syngja og leika. Ellismellir, breytingaskeiðsbreddur, raðgiftingagellur og óléttukvíðasjúklingar. Velkomin í leikhúsið í janúar og bíðið bara, þetta verður bomba,“ segir Lárus. Gaflaraleikhúsið verður einnig með leiklistarskóla fyrir unglingadeildir grunnskóla Hafnarfjarðar og leiklistarnámskeið fyrir 10 til 13 ára börn. Í apríl verður svo endurfrumsýnt leikritið Fyrsta skiptið sem sló í gegn í leikhúsinu 2018-2019. „Klukkutíma löng ferðasýning á ensku hefur verið unnin upp úr verkinu í samvinnu við enskan leikhóp sem mun æfa hér á landi og frumsýna verkið á leiklistarhátíð Assitej “UNGA” sem haldin verður hér dagana 22.-24. apríl 2021. Áætlaðar eru nokkrar sýningar hér heima og svo mun sýningin fara í leikferð um England.“
Menning Leikhús Hafnarfjörður Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira