Aftur gerð að konunglegri frillu Taílandskonungs Atli Ísleifsson skrifar 2. september 2020 10:35 Vajiralongkorn Taílandskonungur og Sineenat Wongvajirapakdi. AP
Sineenat Wongvajirapakdi hefur aftur hlotið titilinn „konungleg frilla“ Taílandskonungs, nærri ári eftir að hafa verið svipt titlunum í kjölfar þess að það kastaðist í kekki milli þeirra. Taílenskir fjölmiðlar segja Vajiralongkorn konung hafa veitt Sineenat titilinn á ný í dag. Sineenat var svipt titlum sínum í október 2019, fáeinum mánuðum eftir að hafa hlotið þá. Var sagt að henni hafi með því verið refsað fyrir að reyna að setja sig á sama stall og drottningin. Hún hafi ekki sýnt næga hollustu, verið óþakklát og of metnaðargjörn. Hin 34 ára Sineenat var fyrst til að fá titilinn „konungleg frilla“ í Taílandi í nærri heila öld. Hún er frá norðurhluta landsins og starfaði sem hjúkrunarfræðingur áður en hún hóf ástarsamband við þáverandi krónprins landsins, Vajiralongkorn prins. Með tímanum starfaðu hún svo sem „lífvörður“ prinsins og sem flugmaður innan taílenska hersins. Snemma árs 2019 var hún gerð að hershöfðinga. Sumarið 2019 var hún svo skipuð „konungleg frilla“, fáeinum mánuðum eftir að konungurinn gekk að eiga Suthidu drottningu. Suthida er fjórða eiginkona konungsins. Vajiralongkorn varð konungur Taílands árið 2016, eftir að faðir hans, Bhumibol konungur, lést.
Taíland Kóngafólk Mest lesið „Þetta er hættulegt ef við viljum áfram búa í frjálslyndu lýðræðissamfélagi“ Innlent Minni tekjur góðar fréttir Innlent Missir úr skóla og tekur ekki þátt í félagslífi eftir að vökvagjöf var hætt Innlent Sakar kaupendur um að hafa aldrei greitt fyrir veitingastaðina Innlent Næringarfræðingur segir próteinbita dulbúið sælgæti Innlent Misskilningur um losunarmarkmið „stórkostlegur áfellisdómur“ Innlent Ósáttur með viðbrögð Barna- og fjölskyldustofu Innlent Óttast áhrifin sem frumvarpið geti haft á Landspítalann Innlent Gríðarlega löng röð í verslun Nocco Lífið „Algjört vandræðamál og sorglegt“ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að lögsækja BBC þrátt fyrir afsökunarbeiðni Árekstur rútu rannsakaður sem manndráp af gáleysi Árásir á lestarkerfi Úkraínu hafi þrefaldast Hætta notkun metanhemjandi íblöndunarefnis Rannsaka tengsl Epstein við Clinton Þrír látnir eftir að rútu var ekið á biðskýli Sprengdu næst stærstu olíudælustöð Rússlands Sautján ára og í leit að peningum fyrir spöngum „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Rufu einangrun jaðarhægrisins til að afnema umhverfisreglur Enginn ákærður eftir umdeilt þrjú hundruð manna áhlaup Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Vilja ekki feita innflytjendur Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu BBC biður Trump afsökunar en hafnar bótakröfu Eldar í nær öllum hverfum eftir árásir Rússa á Kænugarð Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi „Áratugur er ekki langur tími fyrir þá sem lifðu af“ „Ég er sá sem getur fellt hann“ Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Minnast þess að tíu ár eru frá hryllingnum í París Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Sjá meira