Nýi kóngurinn í Kórnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. ágúst 2020 11:00 Birnir Snær Ingason í leik með HK í Kórnum fyrr í sumar. Vísir/Daníel Þór HK-ingurinn Birnir Snær Ingason hefur farið á kostum í síðustu heimaleikjum Kópavogsliðsins. Birnir Snær Ingason skoraði tvö mörk fyrir HK í gær þegar liðið vann 3-0 sigur á Gróttu í mikilvægum leik í neðri hluta Pepsi Max deildar karla. Þetta var þriðji heimsigur HK-inga í röð og þeir eiga það allir sameiginlegt að Birnir Snær Ingason hefur verið á skotskónum. Birnir Snær Ingason hefur nú skorað fimm mörk í síðustu þremur heimaleikjum HK, sigurmarkið á móti Blikum, tvö mörk í 3-1 sigri á Fjölni og svo tvö mörk í 3-0 sigri á Gróttu í gær. Þessi fimm mörk eru jafnframt einu mörkin hans Birnis í Pepsi Max deildinni í sumar. Birnir Snær Ingason skoraði líka bæði mörkin sín í deildinni í fyrra í Kórnum en þó fyrir sitthvort félagið. Birnir Snær byrjaði tímabilið með Val og skoraði þannig sigurmark Hlíðarendafélagsins í 2-1 sigri á HK í Kórnum, HK-ingar fengu síðan Birni frá Val 1. ágúst 2019 og eina deildarmarkið hans fyrir HK síðasta sumar kom í 4-1 sigri á KR í Kórnum. Sjö síðustu mörk Birnis Snæs Ingasonar í Pepsi Max deildinni hafa því komið í Kórnum og þau hafa komið í tíu leikjum hans í húsinu. Birnir Snær hefur aftur á móti spilað 29 deildarleiki í röð utan Kórsins án þess að skora. Birnir Snær Ingason í Pepsi Max deildinni 2019-20 Í Kórnum 2019: 2 mörk í 4 leikjum 2020: 5 mörk í 6 leikjum Samtals: 7 mörk í 10 leikjum Utan Kórsins 2019: 0 mörk í 14 leikjum 2020: 0 mörk í 6 leikjum Samtals: 0 mörk í 20 leikjum Pepsi Max-deild karla HK Mest lesið Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Golf Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Fótbolti Sigurmark Glódísar olli sögulegu tapi Arsenal Fótbolti Leiðin á HM: Fjögur þúsund manns hurfu sporlaust Fótbolti Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Íslenski boltinn Heimir spurður hvort að enn stafi ógn af Ronaldo Fótbolti Óli Jó segir að Geir hafi rekið hann þrisvar Fótbolti Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Enski boltinn Aserar áhugalitlir og völlurinn hálftómur Sport Drap Messi-drauminn í fæðingu: „Ekki raunhæft“ Fótbolti Fleiri fréttir Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Sjá meira
HK-ingurinn Birnir Snær Ingason hefur farið á kostum í síðustu heimaleikjum Kópavogsliðsins. Birnir Snær Ingason skoraði tvö mörk fyrir HK í gær þegar liðið vann 3-0 sigur á Gróttu í mikilvægum leik í neðri hluta Pepsi Max deildar karla. Þetta var þriðji heimsigur HK-inga í röð og þeir eiga það allir sameiginlegt að Birnir Snær Ingason hefur verið á skotskónum. Birnir Snær Ingason hefur nú skorað fimm mörk í síðustu þremur heimaleikjum HK, sigurmarkið á móti Blikum, tvö mörk í 3-1 sigri á Fjölni og svo tvö mörk í 3-0 sigri á Gróttu í gær. Þessi fimm mörk eru jafnframt einu mörkin hans Birnis í Pepsi Max deildinni í sumar. Birnir Snær Ingason skoraði líka bæði mörkin sín í deildinni í fyrra í Kórnum en þó fyrir sitthvort félagið. Birnir Snær byrjaði tímabilið með Val og skoraði þannig sigurmark Hlíðarendafélagsins í 2-1 sigri á HK í Kórnum, HK-ingar fengu síðan Birni frá Val 1. ágúst 2019 og eina deildarmarkið hans fyrir HK síðasta sumar kom í 4-1 sigri á KR í Kórnum. Sjö síðustu mörk Birnis Snæs Ingasonar í Pepsi Max deildinni hafa því komið í Kórnum og þau hafa komið í tíu leikjum hans í húsinu. Birnir Snær hefur aftur á móti spilað 29 deildarleiki í röð utan Kórsins án þess að skora. Birnir Snær Ingason í Pepsi Max deildinni 2019-20 Í Kórnum 2019: 2 mörk í 4 leikjum 2020: 5 mörk í 6 leikjum Samtals: 7 mörk í 10 leikjum Utan Kórsins 2019: 0 mörk í 14 leikjum 2020: 0 mörk í 6 leikjum Samtals: 0 mörk í 20 leikjum
Birnir Snær Ingason í Pepsi Max deildinni 2019-20 Í Kórnum 2019: 2 mörk í 4 leikjum 2020: 5 mörk í 6 leikjum Samtals: 7 mörk í 10 leikjum Utan Kórsins 2019: 0 mörk í 14 leikjum 2020: 0 mörk í 6 leikjum Samtals: 0 mörk í 20 leikjum
Pepsi Max-deild karla HK Mest lesið Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Golf Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Fótbolti Sigurmark Glódísar olli sögulegu tapi Arsenal Fótbolti Leiðin á HM: Fjögur þúsund manns hurfu sporlaust Fótbolti Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Íslenski boltinn Heimir spurður hvort að enn stafi ógn af Ronaldo Fótbolti Óli Jó segir að Geir hafi rekið hann þrisvar Fótbolti Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Enski boltinn Aserar áhugalitlir og völlurinn hálftómur Sport Drap Messi-drauminn í fæðingu: „Ekki raunhæft“ Fótbolti Fleiri fréttir Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Sjá meira