Árásarmaðurinn í Þýskalandi nafngreindur Samúel Karl Ólason skrifar 20. febrúar 2020 09:21 Minnst tíu eru látnir eftir að Rathjen framdi tvær skotárásir á vatnspípubari í Hanau í Þýskalandi í gærkvöldi.
Árásarmaðurinn í Hanau í Þýskalandi hefur verið nafngreindur af fjölmiðlum. Hann hét Tobias Rathjen og var 43 ára gamall bankastarfsmaður. Hann er sagður hafa verið hægri—öfgamaður og rasisti. Alríkissaksóknarar hafa tekið yfir rannsókn málsins vegna alvarleika þess og eru árásirnar skilgreindar sem hryðjuverk. Minnst tíu eru látnir eftir að Rathjen framdi tvær skotárásir á vatnspípubari í Hanau í Þýskalandi í gærkvöldi. Hann fannst látinn á heimili sínu nokkrum klukkustundum síðar en þar fannst einnig lík eldri konu sem sögð er vera móðir hans. Lögreglan skoðar nú bæði bréf og myndband sem Rathjen skyldi eftir sig. Sjá einnig: Árásarmaðurinn fannst látinn á heimili sínu Nokkrum dögum fyrir árásirnar birti Rathjen myndband á Youtube þar sem hann hélt því meðal annars fram að leynileg öfl beittu hugsanastjórn til að stjórna Bandaríkjunum úr skuggunum. Þar í landi væru neðanjarðar herstöðvar þar sem djöfladýrkun væri stunduð og börn væru misnotuð og myrt. Allir Bandaríkjamenn þyrftu að berjast til að binda enda á þessi meintu ódæði. „Vaknið! Þetta er raunverulega ástandið í landinu ykkar,“ sagði hann í myndbandinu.
Þýskaland Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira