Íslensku fótboltalandsliðin kveðja Errea búningana í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2020 15:30 Gylfi Þór Sigurðsson í Errea búningi íslenska landsliðsins á HM í Rússlandi 2018. Getty/ Jan Kruger
Íslensku fótboltalandsliðin munu leika sína síðustu leiki í Errea búningum á þessu ári en Knattspyrnusamband Íslands er búið að gera samning við annan íþróttavöruframleiðanda. Fótbolti.net segir frá þessu og hefur heimildir fyrir því að íslensku landsliðin muni skipta yfir í Puma búninga eftir Evrópumótið í sumar. Íslensku landsliðin hafa spilað í Errea búningum frá árinu 2002 og er því átján ára samstarfi að ljúka. Errea er ítalskur íþróttavöruframleiðandi en hann hefur komið fram með glænýja búninga landsliðsins fyrir bæði stórmót liðsins á síðustu árum. „Við erum samningsbundnir Errea út júní 2020 og það er ekkert í spilunum að það breytist. En við erum búin að gera nýjan búningasamning sem tekur við af þeim samningi," sagði Stefán Gunnarsson, markaðsstjóri KSÍ, í samtali við fótbolta.net. Íslenska fótboltalandsliðið hefur ekki spilað í Puma búningum áður en liðið hefur meðal annars verið í Umbro (1975), Adidas (1976-91), ABM (1992-96) og Reusch (1996-2001) búningum. „Við erum samningsbundnir Errea út júní 2020 og það er ekkert í spilunum að það breytist. En við erum búin að gera nýjan búningasamning sem tekur við af þeim samningi," segir Stefán í samtali við fótbolta.net. Nýtt landsliðsmerki verður enn fremur kynnt eftir umspilsleikina í mars en það verður annað merki en kynnt var sem nýtt merki Knattspyrnusambandsins á dögunum.
EM 2020 í fótbolta KSÍ Mest lesið Fantasýn: Bogi Nils þarf að vara sig og ekkert breyst hjá stjórnarformanni Play Enski boltinn Baulað á Figo í Barcelona: „Portúgalinn er ekki velkominn hér“ Fótbolti Bjarni Jó kveður Selfoss Íslenski boltinn „Ótrúlega gaman að sjá þessa stelpu dafna“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Skiptiborðið og Blikar í Evrópu Sport Uppgjörið: Keflavík - Valur 79-88 |Frábær endurkomusigur hjá Val Körfubolti Valur vann stigalausu Stjörnuna Handbolti De Bruyne lagði tvisvar upp fyrir Højlund Fótbolti Evrópumeistararnir með endurkomusigur gegn Barcelona Fótbolti „Ég myndi frekar vilja vinna svona en að vera yfir allan leikinn“ Sport Fleiri fréttir Baulað á Figo í Barcelona: „Portúgalinn er ekki velkominn hér“ Bjarni Jó kveður Selfoss Fantasýn: Bogi Nils þarf að vara sig og ekkert breyst hjá stjórnarformanni Play „Ótrúlega gaman að sjá þessa stelpu dafna“ De Bruyne lagði tvisvar upp fyrir Højlund Dier stal stigi af svekktum City mönnum Ödegaard lagði Skytturnar upp til sigurs Evrópumeistararnir með endurkomusigur gegn Barcelona Stjarnan - FH 3-4 | FH endurheimti annað sætið Öruggt hjá Skjórunum en óvíst hver skoraði Arftaki Heimis fundinn: „Alltaf áhætta að gera breytingar“ „Mjög súr og dapur þegar hann hringdi í mig“ Erfitt að yfirgefa Þrótt en starfið hjá KSÍ of spennandi til að hafna því Arnar: Aðrir leikmenn framar en Jóhann Orri, Jóhann og Gylfi ekki með en Aron valinn Svona var fundur KSÍ þegar Arnar tilkynnti landsliðshópinn Drama í sænska landsliðinu: „Hann hefur svikið liðsfélaga sína“ Kaupa einn frægasta leikvang heims til þess að rífa hann Barcelona verður ekki refsað þótt þeir kaupi ekki Rashford Var Vinícius Júnior kallaður api eða kjáni? Sjáðu kinnhestinn sem felldi Liverpool og þrennu Mbappe Segir Liverpool ekki spila eins og topplið: Spila körfubolta en ekki fótbolta Vilja ekki að merki þeirra sé á búningum Ísraelsliðsins Áhrif NFL á ensku úrvalsdeildina: „Eins og heill leikur af föstum leikatriðum“ Fékk óvart rautt spjald „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ Tottenham bjargaði stigi í Noregi „Það er allt mögulegt“ Uppgjör: Víkingur - Valur 3-0 | Sannfærandi heimasigur í rigningunni Heimir yfirgefur FH að tímabilinu loknu Sjá meira