Agla María bæði með markaþrennu og stoðsendingaþrennu í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2020 13:30 Agla María Albertsdóttir í leik með Blikum í Pepsi Max deild kvenna. Vísir/Bára
Blikastúlkan Agla María Albertsdóttir skoraði þrennu fyrir topplið Breiðabliks í 7-0 sigri á FH í Pepsi Max deild kvenna um helgina. Þetta var fyrsta markaþrenna hennar í sumar en þó ekki fyrsta þrennan. Agla María Albertsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Breiðablik í stórsigrinum í Kaplakrika á sunnudaginn. Hún skoraði þriðja, fjórða og fimmta mark Blika í leiknum. Eftir leikinn er Blikaliðið með fimm stiga forskot á toppnum og markatöluna 35-0. Agla María hefur verið meira í að leggja upp mörk en að skora þau í Pepsi Max deild kvenna í sumar en tvöfaldaði markafjölda sinn í sumar með þrennunni á móti FH. Þetta var ekki fyrsta þrennan hennar á tímabilinu því Agla María átti einnig stoðsendingaþrennu í sigrinum á Val. Agla María lagði þar upp tvö mörk fyrir Sveindísi Jane Jónsdóttur og eitt fyrir Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur. Þær Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir hafa báðar skorað markaþrennu fyrir Blikana í sumar og bættist því Agla Marí í hóp þeirra um helgina. Agla María Albertsdóttir hefur alls gefið 10 stoðsendingar í Pepsi Max deild kvenna í sumar og er fyrsti leikmaðurinn í bæði karla- og kvennadeildinni til að komast upp í tveggja stafa tölu í stoðsendingum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Víkingur - Vestri 4-0 | Víkingur er meistari meistaranna Íslenski boltinn Íhugar að hætta í Formúlu 1 Formúla 1 Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Sport Hjartnæm stund hjá Árna Gauti í Rosenborg Fótbolti Guðlaug Edda á von á barni Sport Yfirmaður hjá Bayern hæðist að Liverpool Enski boltinn Tudor hættir störfum hjá Tottenham Enski boltinn Féll og lést skömmu fyrir fyrsta leik á nýuppgerðum HM leikvangi Fótbolti Handa- og fótalaus en sakaður um morð Sport Antonelli vann aftur og tók met af Hamilton Formúla 1 Fleiri fréttir „Þetta er leikur um bikar og við stefnum á þá alla“ Víkingur - Vestri 4-0 | Víkingur er meistari meistaranna Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Blikar léku við hvurn sinn fingur í úrslitaleiknum Gulir og glaðir orðnir fjólubláir aftur Viðar með þrennu í fyrri hálfleik í bikarsigri Sveinn Margeir með KA í allt sumar Þórsarar sækja norskan framherja Fram fær Ægi Jarl fyrir fyrsta leik Jóhann Berg hætti við að skrifa undir Sér um allt í Bestu deildinni: „Fólkið er ekki neitt án leiðtoga“ KR og Valur mætast í Mjólkurbikarnum Víkingskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum Gleðifréttir fyrir FH-konur sem halda Andreu Rán Þriðji ættliðurinn sem spilar með FH 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjá meira