Ekkja Li Wenliang eignast son Samúel Karl Ólason skrifar 12. júní 2020 15:40 Minnisvarði um Li Wenliang. EPA/YFC CHINA OUT
Fu Xuejie, ekkja kínverska læknisins Li Wenliang, sem fyrstur benti á faraldur kórónuveirunnar, hefur fætt son. Ekkjan hefur birt mynd af kornabarninu og segir drenginn síðustu gjöf látins eiginmanns síns. Li var handtekinn og hnepptur í varðhald eftir að hafa varað við því að faraldur gæti verið í uppsiglingu. Sökuðu yfirvöld hann um að breiða út ósannindi og var hann þvingaður til að skrifa undir yfirlýsingu um að hann væri að ljúga. Aðrir læknar sem Li hafði rætt við og höfðu sömuleiðis reynt að vara við veirunni urðu einnig fyrir refsingum. Læknirinn lést síðan sjálfur úr Covid-19 sjúkdómnum. Hann var síðar heiðraður og hafinn til vegs og virðingar eftir mótmæli almennings á meðferðinni á honum. Fyrir átti læknirinn annan son með eiginkonu sinni og segir hún með myndinni af nýburanum: Eiginmaður minn, sérðu okkur af himnum? BBC vitnar í kínverskan miðil sem ræddi við ekkjuna þar sem hún sagðist dauða Li hafa reynt verulega á sig andlega og að hún hafi þurft að vera lögð inn á sjúkrahús um tíma til að tryggja öryggi ófædds barns hennar.
Kína Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira