Fyrsti samskiptastjóri Haga sérfræðingur í krísum Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. nóvember 2019 13:13 Særún Ósk Pálmadóttir, nýr samskiptastjóri Haga. Lárus Karl Ingason
Særún Ósk Pálmadóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri Haga hf. Særún er sögð hafa viðamikla reynslu á þessu sviði, en í námi sínu sérhæfði Særún sig í svokölluðum „krísusamskiptum.“ Í tilkynningu frá Högum þar sem greint er frá ráðningu hennar er tekið fram að um nýja stöðu innan félagsins sé að ræða. Hún sé tilkomin eftir skipulagsbreytingar innan Haga sem tilkynnt var um í ágúst, en markmiðið samskiptastjórans sé að „gera boðleiðir skýrari og markvissari innan Haga og dótturfyrirtækja.“ Særúnu hefur verið falið það verkefni, ekki síst vegna reynslu hennar á sviði samskiptaráðgjafar eins og rakið er í tilkynningu Haga. Þar segir að hún hafi síðast starfað hjá ráðgjafastofunni Aton.JL, áður Aton, þar sem hún starfaði sem samskiptaráðgjafi síðastliðin þrjú ár. „Á árunum 2018 og 2019 var hún einnig kynningarstjóri tónlistarhátíðarinnar Myrkir músíkdagar. Særún hefur starfað sem sérfræðingur í samskiptum hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Tempo og verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Þar er jafnframt vikið að menntun Særúnar, sem sögð er vera með M.Sc. gráðu í almannatengslum með áherslu á krísusamskipti frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð og Háskólanum í Stirling í Skotlandi, sem og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Markaðir Vistaskipti Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira