40 umferðir af 44 í fallsæti en féllu í hvorugt skiptið Anton Ingi Leifsson skrifar 22. september 2019 06:00 Gunnar Örvar Stefánsson, leikmaður Magna. vísir/ernir
Magni frá Grenivík mun leika í Inkasso-deildinni á næstu leiktíð eftir að liðið bjargaði sæti sínu í lokaumferðinni annað árið í röð. Magnamenn komust upp í Inkasso-deildina í fyrra eftir 38 ára fjarveru en þar áður höfðu þeir einungis einu sinni spilað í B-deildinni. Það var árið 1979. Næsta tímabil verður því þriðja tímabilið í röð og það fjórða í heildina sem liðið leikur í næst efstu deild á Íslandi en ef litið er á tölfræðina er það ansi merkilegt. Knattspyrnuáhugamaðurinn, Jóhann Már Kristinsson, vakti athygli á því á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi að Magnamenn hefðu síðustu tvær leiktíðir verið í fallsæti 40 umferðir af þeim 44 sem eru leiknar en fallið í hvorugt skiptið.Ekkert félag betra í að toppa á réttum tíma en Magnamenn... 2 ár í Inkasso 44 umferðir 40 umferðir í fallsæti 0 Föll! Vel gert Svenni og félagar í @MagniGrenivik — Jóhann Már Kristinsson (@joikidda) September 21, 2019 Á síðustu leiktíð voru þeir ekki í fallsæti eftir þriðju umferðina og svo þá síðustu, 22., en á þessari leiktíð voru þeir ekki í fallsæti síðustu tvær umferðirnar. Grenivík mun því eiga sinn fulltrúa í næst efstu deild íslenska boltans á næstu leiktíð í fjórða sinn.
Grýtubakkahreppur Inkasso-deildin Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Enski boltinn Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Fótbolti Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Stjarnan 4-2 | Rhodes með þrennu í seinni hálfleik Jón Daði skoraði fyrsta markið fyrir Selfoss í þrettán ár og Fylkir á botninum Hártog er harðbannað og ekki skylda að vera með tagl Matthías ekki lengi einsamall hjá Val Stjarnan sækir landsliðsfélaga Caulker Uppgjörið: FHL – Fram 3-2 | Fyrsti sigur FHL í hús Uppgjörið: Víkingur R – Breiðablik 2-4 | Meistararnir áfram í stuði Uppgjörið: FH – Þór/KA 5-3 | Markasúpa í Hafnafirði Heimir fær aðeins einn leik og aganefndin hittir illa á Aftureldingu KR fær þýskan varnarmann Ræddu lætin í Krikanum: „Það er helvítis hundur í Heimi“ Sjáðu frábærar afgreiðslur Sigurðar Bjarts, vítavörslur Árna og endurkomu KR-inga „Dóri verður að hætta þessu væli“ „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ „Var farinn að krampa upp í öllum vöðvum líkamans“ Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Uppgjörið: FH - ÍA 3-2 | Ótrúleg endurkoma heimamanna í Kaplakrika Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum „Brugðumst vel við þeim aðstæðum sem leikurinn henti í okkur“ „Rýr stigasöfnun í deildinni vissulega áhyggjuefni“ Halldór: Góð ákvörðun hjá þeim að hætta spila boltanum Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan sigraði Víking í viðburðarríkum leik Hallgrímur: Ef þú slakar á 1-3% er þetta fljótt að breytast Uppgjörið: Valur - Breiðablik 2-1 | Dramatískt sigurmark Vals í uppbótartíma Davíð Smári: Ánægður með orkustigið Uppgjörið: Vestri-Fram 3-2 | Vestri með sigurmark í uppbótatíma Umræða um hártog Þróttarakonu í Bestu mörkunum Öll mörk Patricks Pedersen í efstu deild Sjá meira