Arnór Ingvi lagði upp tvö mörk í fjórða sigri Malmö í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. september 2019 19:23 Arnór Ingvi með þjálfara Malmö, Uwe Rösler. vísir/getty
Arnór Ingvi Traustason lagði upp tvö mörk þegar Malmö bar sigurorð af Helsingborg, 3-0, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Í 21 deildarleik á tímabilinu hefur Arnór Ingvi skorað fimm mörk og gefið átta stoðsendingar. Þetta var fjórði sigur Malmö í röð. Liðið er í 2. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Djurgården þegar fimm umferðum er ólokið. Daníel Hafsteinsson kom inn á sem varamaður hjá Helsinborg sem er í 10. sæti deildarinnar. Guðmundur Þórarinsson lék allan leikinn fyrir Norrköping sem rúllaði yfir Athletic Eskilstuna, 4-0. Norrköping er í 5. sæti deildarinnar. Hvorki gengur né rekur hjá Djurgården í sænsku kvennadeildinni. Liðið tapaði fyrir Linköping, 4-1, í kvöld og er í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar, þremur stigum frá öruggu sæti. Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leikinn í vörn Djurgården en Guðrún Arnardóttir kom ekkert við sögu. Anna Rakel Pétursdóttir lék allan leikinn fyrir Linköping sem er í 6. sæti deildarinnar. Þá var Bjarni Mark Antonsson í byrjunarliði Brage sem laut í lægra haldi fyrir Degerfors, 1-2, í sænsku B-deildinni. Brage jafnaði í 1-1 þegar sjö mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma en Degerfors skoraði sigurmarkið tveimur mínútum síðar. Brage er í 4. sæti deildarinnar, þremur stigum frá umspilssæti.
Sænski boltinn Mest lesið Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Formúla 1 Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Sport Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Markaregn í enska boltanum í dag Fótbolti Fleiri fréttir Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Sjá meira