Einsleitir stöndum vér Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 10. september 2019 07:00 Eitt það besta við að vinna í Reykjavík er að þar finnst samtíningur af ýmsu sauðahúsi frá öllum fjórðungum. Eitt sinn vann ég með Ódysseifi einum að austan sem sagði mér sögur af sjóara sem sigldi inn fjörðinn löngu eftir að búið var að telja hann af. Þar var líka snilldar hestakona úr Borgarfirði, menningarlegur prakkari frá Patró, vinnstri sinnaður landshornaflakkari og svo auðvitað innan um innfæddir Reykvíkingar. Einn þeirra sleit barnsskónum í bardaga milli Írabakka og Jörfabakka. Skemmtileg kreðsa, en hvernig verður þetta þegar allir eru aldir upp á sömu spildunni, endar þetta ekki með andlegum innvenslum? Eflaust er mín skáldlega sýn skarpari en sú pólitíska svo mér sárnar jafnan undan sameiningu sveitarfélaga. Ekki eru það sárindi yfir því að yfirvöld skyldu leggja þau til heldur hitt að það er enginn eftir til að andmæla þeim. Ég hef svolitlar áhyggjur af því að Ísland verði einsleitt. Á Vestfjörðum er leikfélag, Komedíuleikhúsið, en fyrir tilstuðlan þess hafa mörg þúsund manns fylgst með mörgum af fremstu listamönnum þjóðarinnar stíga á svið á Actalone hátíðinni sem haldin hefur verið í vel á annan áratug. Forkólfurinn, Elfar Logi Hannesson, hefur sýnt um fjörutíu leikverk sem er ómetanlegt fyrir fjórðung hvers íbúar rúmuðust á þremur kvöldum í Eldborg. Þannig hafa einleikir ýtt undir margbreytileika hjá þjóð sem gerir helst ráð fyrir því að menningin blómstri aðeins í borginni. Svona starf mætti að styrkja um land allt nema ef yfirvöld hafa svipaðan áhuga á fjölbreytni eins og ég á sameiningum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Þegar traustið brestur - Háskólinn á Bifröst Stefanía Hrund Guðmundsdóttir Skoðun Hvíl í friði, Bifrastarandinn Selma Klara Gunnarsdóttir Skoðun Þegar álag barns reynir á hjónabandið Sigurður Árni Reynisson Skoðun Er verið að kynna Borgarlínuna sem strætó? Bárður Sigurðsson Skoðun „Er ekki bara best að hætta þessu fiskeldi?” Halla Hrund Logadóttir Skoðun Sumt er hægt að verja aðeins einu sinni Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Tryggjum hvata til stafrænnar námsgagnagerðar Bogi Ragnarsson Skoðun Að þegja yfir óstjórn en segja að jafnvægi sé efnahagslegur dómsdagur Þórður Snær Júlíusson Skoðun Frá Sjálfstæðisflokki til Samfylkingar og óháðra – af hverju? Bjarni Torfi Álfþórsson Skoðun Þegar viðvaranir eru hunsaðar Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Skoðun
Að þegja yfir óstjórn en segja að jafnvægi sé efnahagslegur dómsdagur Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Að þegja yfir óstjórn en segja að jafnvægi sé efnahagslegur dómsdagur Þórður Snær Júlíusson Skoðun