Rúnar Már með bæði mark og stoðsendingu í Íslendingaslag í Evrópudeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. ágúst 2019 15:49 Rúnar Már Sigurjónsson í báráttu við N'Golo Kanté í leik Íslands og Frakklands í undankeppni EM 2020 sem fram fór á Stade de France fyrr á þessu ári. Getty/Aude Alcover
Rúnar Már Sigurjónsson og félagar í Astana frá Kasakstan eru í frábærri stöðu eftir 3-0 sigur á BATE Borisov frá Hvíta Rússlandi í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Rúnar Már var áfram á skotskónum í Evrópudeildinni og var einnig með stoðsendinguna í fyrsta marki leiksins. Seinni leikur liðanna fer fram í Hvíta-Rússlandi í næstu viku en það lið sem hefur betur tryggir sér sæti í 48 liða riðlakeppni Evrópudeildarinnar í vetur. Þar getur það lið mætt liðum eins og Manchester United, Arsenal, Porto, Sevlla, CSKA Moskvu og Roma. Rúnar Már hefur nú skorað fjögur mörk í Evrópudeildinni í ár en hann skoraði þriðja mark Astana úr vítaspyrnu á 52. mínútu. Rúnar hefur skorað í öllum þremur heimaleikjum Astana í forkeppni Evrópudeildarinnar og þetta var annar heimaleikurinn í röð þar sem hann er bæði með mark og stoðsendingu. Marin Tomasov kom Astana í 1-0 á 23. mínútu eftir stoðsendingu frá Rúnari Má og einni mínútu fyrir hálfleik bætti Yuriy Logvinenko öðru marki eftir stoðsendingu frá Tomasov. Willum Þór Willumsson kom inn á sem varamaður hjá BATE Borisov á 61. mínútu en hann kom inn fyrr Hvít-Rússann Dmitri Baga í stöðunni 3-0 fyrir Astana. Astana-liðið hefur verið mjög erfitt heim að sækja í Evrópudeildinni í sumar en liðið hefur unnið þrjá heimaleiki sína með markatölunni 12-2. Marin Tomasov hefur skorað fimm af þessum mörkum og Rúnar Már fjögur.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Sjá meira