Sigurður Egill Lárusson og töpuðu stigin tíu Anton Ingi Leifsson skrifar 12. ágúst 2019 10:45 Sigurður í Evrópuleik með Val fyrr á leiktíðinni. vísir/bára
Valur er í sjötta sæti Pepsi Max-deildarinnar eftir 3-2 tap í dramatískum stórleik gegn FH á Origo-vellinum er liðin mættust í 16. umferð deildarinnar. Gengi Vals hefur verið upp og niður í sumar en eftir afar dapra byrjun náði liðið aðeins að rétta úr kútnum. Liðið hefur nú unnið tvo af síðustu átta leikjum í öllum keppnum. Valsmenn hafa verið duglegir að missa niður forystu í leikjum sínum í sumar og ef kíkt er nánar á leikskýrslunni úr þessum leikjum má sjá nokkuð athyglisvert. Í þeim leikjum sem Valur hefur misst niður forystu er kantmaðurinn Sigurður Egill Lárusson yfirleitt tekinn af velli. Í fimm leikjum hefur Sigurður verið tekinn af velli og í þeim leikjum hefur Valur tapað tíu stigum. Í þokkabót var Sigurður Egill ekki með Vals-liðinu í fyrstu þremur leikjum liðsins í deildinni þar sem liðið fékk einungis eitt stig. Sigurður var heldur ekki með er Valur féll úr leik gegn FH í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Ef og hefði eru orð sem eru oft notuð í fótbolta en ef Valur hefði verið með tíu stigum meira á þessum tímapunkti í Pepsi Max-deildinni væru Íslandsmeistararnir í öðru sætinu með 33 stig. Hér að neðan má sjá tölfræðina úr leikjunum sem Sigurður Egill hefur verið tekinn af velli.Leikir sumarsins sem Sigurður Egill Lárisson fer útaf:12. ágúst Valur - FH 2-3 Sigurður Egill Lárusson fór af velli á 72. mínútu í stöðunni 2-1 fyrir Val.Niðurstaða: Þrjú töpuð stig21. júlí Víkingur - Valur 2-2 Sigurður Egill Lárusson fór af velli á 73. mínútu í stöðunni 2-1 fyrir Val.Niðurstaða: Tvö töpuð stig19. júní KR - Valur 3-2 Sigurður Egill Lárusson fór af velli á 55. mínútu í stöðunni 2-0 fyrir Val.Niðurstaða: Þrjú töpuð stig26. maí Valur - Breiðablik 0-1 Sigurður Egill Lárusson fór af velli á 68. mínútu í stöðunni 0-0.Niðurstaða: Eitt tapað stig20. maí FH - Valur 3-2 Sigurður Egill Lárusson fer af velli á 73. mínútu í stöðunni 1-1.Niðurstaða: Eitt tapað stigNiðurstaða í heild sinni: Fimm leikir og tíu töpuð stig.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Ég skulda ‚Tannlækninum' afsökunarbeiðni“ Sport Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti Ronaldo sá rautt og óð reiður til Heimis Fótbolti Gaman í íslenska klefanum eftir leik Fótbolti „Í öllum góðum hópum er alltaf einn sem labbar aftur á bak“ Körfubolti Skytturnar héldu fullkomnu flugi Englands áfram Fótbolti Eggert Aron mætir fyrir úrslitaleikinn í Póllandi Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka Sjá meira