Rúnar Már skoraði þegar Astana flaug áfram í 3. umferð Evrópudeildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. ágúst 2019 15:51 Rúnar Már Sigurjónsson í leik með íslenska landsliðinu. Getty/Jean Catuffe
Rúnar Már Sigurjónsson og félagar í liði Astana frá Kasakstan eru komnir áfram í næstu umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta. Íslenski landsliðsmaðurinn var á skotskónum í dag. Astana vann 4-1 sigur á rúmenska liðinu FC Santa Coloma í seinni leik liðanna í annarri umferð forkeppninnar. Leikurinn í dag fór fram í Kasakstan. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli í Rúmeníu og Astana vann því 4-1 samanlagt. Þetta byrjaði samt ekki vel fyrir Astana liðið sem lenti 1-0 undir eftir aðeins sjö mínútna leik. Rúnar Már Sigurjónsson jafnaði metin úr vítaspyrnu á 24. mínútu en Astana þurfti fleiri mörk. Þau skoraði Króatinn Marin Tomasov sem kom inn á sem varamaður eftir klukkutíma leik. Tomas skoraði tvívegis á sex mínútum, á 73. og 79. mínútu, og kom Astana í 3-1. Marin Tomasov innsiglaði síðan sigurinn og þrennu sína með marki í uppbótartíma. Draumainnkoma hjá varamanni að skora þrennu á hálftíma. Rúnar Már Sigurjónsson fór af velli á 63. mínútu en staðan var þá 1-1. Astana hafði komið inn í forkeppni Evrópudeildarinnar úr Meistaradeildinni á sama hátt og Íslandsmeistarar Vals. Astana tapaði fyrir rúmenska félaginu CFR Cluj í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Sjá meira