Níu látnir í flugslysi í Svíþjóð Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. júlí 2019 14:54 Skjáskot úr myndbandi hins sextán ára Axels, sem varð vitni að slysinu við Umeå í dag. Skjáskot/SVT
Níu eru látnir eftir að lítil flugvél brotlenti á eyjunni Storsandskär í grennd við sænsku borgina Umeå skömmu eftir klukkan tvö að sænskum tíma í dag. Enginn komst lífs af úr slysinu en talið er að farþegarnir í vélinni hafi verið fallhlífastökkvarar.SVT hefur eftir sjónarvotti að fólk hafi stokkið út úr vélinni áður en hún brotlenti. Viðbragðsaðilar eru enn að störfum á vettvangi. SVT ræðir jafnframt við hinn sextán ára Axel, sem býr í nágrenni við flugvöllinn í Umeå og tók slysið upp á myndband. Hann lýsir því hvernig hann hafi setið inni í stofu þegar hann heyrði hátt vélarhljóð. „Hún brotlenti með háum hvelli og svo varð allt hljótt. Hjartslátturinn varð mjög hraður, ég náði vart andanum og stóð bara og hugsaði: Hvað í fjandanum er að gerast, hvað í fjandanum er að gerast, hvað geri ég nú?“ segir Axel í samtali við SVT. Þegar fyrst var tilkynnt um slysið var ekki ljóst hvort flugvélin hefði hrapað í sjó eða á land en síðar kom í ljós að hún brotlenti á eyjunni Storsandskär, skammt frá flugbraut flugvallarins í Umeå. Umeå er í norðausturhluta Svíþjóðar en um 87 þúsund manns búa í borginni.
Svíþjóð Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Sjá meira