Pedersen hefur komið að 22 mörkum í síðustu 18 leikjum sínum með Val Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2019 15:00 Patrick Pedersen fagnar marki á móti Grindavík í fyrra. vísir/bára
Patrick Pedersen, markakóngur síðasta tímabils, spilar í kvöld væntanlega sinn fyrsta leik með Val í Pepsi Max deildinni í sumar. Daninn marksækni er kominn til landsins og hann er einnig kominn með leikheimild. Valsmenn taka þá á móti KA í eina leik kvöldsins en leikurinn hefst klukkan 18.00 á Valsvellinum. Þetta er fyrsti leikur tólftu umferðar en hinir leikir umferðarinnar verða síðan á næstu fjórum dögum. Valsmenn keyptu Patrick Pedersen frá FC Sheriff Tiraspol í vikunni og gerðu við hann samning til ársins 2022. Patrick Pedersen var lykilmaður þegar Valsmenn urðu Íslandsmeistarar síðasta sumar en hann endaði sem markakóngur deildarinnar með 17 mörk. Pedersen skoraði ekki í fyrstu þremur umferðunum en opnaði markareikning sinn í leik á móti Stjörnunni 18. maí. Hann kom alls að 22 mörkum í síðustu átján deildarleikjum Valsmanna, skoraði 17 og lagði upp fimm að auki. KA var samt eitt af þremur liðum deildarinnar sem tókst að halda hreinu á móti Patrick Pedersen síðasta sumar en hin voru Fylkir og Víkingur (1 leikur).Síðustu átján leikir Patrick Pedersen með Val í Pepsi deildinni 2018: Jafntefli við Stjörnuna - 1 mark Tap á móti Grindavík - 1 mark Sigur á Breiðabliki - 1 mark Sigur á Fjölni - 1 mark + 1 stoðsending Sigur á KA Sigur á ÍBV Sigur á FH - 1 mark Sigur á Keflavík - 1 mark Jafntefli við KR - 1 mark Sigur á Víkingi Jaqfntefli við Fylki Sigur á Grindavík - 3 mörk Sigur á Breiðabliki - 2 mörk Sigur á Fjölni - 1 mark + 2 stoðsendingar Jafntefli við Stjörnuna Jafntefli við KA 1 stoðsending Sigur á ÍBV - 3 mörk + 1 stoðsending Tap á móti FH - 1 mark Sigur á Keflavík
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Fleiri fréttir „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ Sjá meira