Rúnar Páll: Þórarinn Ingi var sárkvalinn Þór Símon Hafþórsson skrifar 23. júní 2019 18:41 Þórarinn Ingi var fluttur á bráðamóttöku. vísir/daníel þór „
Hann meiddist eitthvað á hné. Hvað nákvæmlega eða hversu alvarleg meiðslin eru vitum við ekki í augnablikinu. Við tökum stöðuna eftir að við heyrum hvað læknarnir hafa að segja,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, um meiðsli Þórarinns Inga Valdimarssonar, leikmanns liðsins, sem fór meiddur af velli á 13. mínútu leik gegn liði Fylkis sem endaði með 5-1 sigri Stjörnunnar. „Hann var sárkvalinn. Hann er ekki maður sem vælir mikið. Þórarinn er hörkutól þannig þegar hann vælir þá veit maður að það er eitthvað mikið að,“ sagði Rúnar og bætti við að hann vonaði það besta. Ekki var að sjá þegar meiðslin urðu að um alvarleg meiðsli var að ræða. Það hinsvegar var augljóst þegar læknar beggja liða hófu að hlúa að Þórarinn sem virtist svo sannarlega sárkvalinn. Að lokum kom sjúkrabíll sem náði í Þórarinn en sem fyrr segir er ekki vitað um hversu alvarleg meiðsli eru að ræða. Aðspurður hvort Stjarnan myndi fara á leikmannamarkaðinn ef ske kynni að meiðslin væru jafn alvarleg og útlit var fyrir var Rúnar ekki á því. „Við erum ágætlega settir þarna. Við erum með Jósef, Jóhann og Heiðar þannig það er ekkert vesen þar á bæ.“
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Þórarinn Ingi meiddist illa og var fluttur á bráðamóttöku Eyjamaðurinn meiddist illa í leik Stjörnunnar og Fylkis. 23. júní 2019 17:01 Leik lokið: Stjarnan - Fylkir 5-1 | Stjarnan skein í Garðabæ Stjarnan sigraði Fylki örugglega 5-1 í Pepsi Max deild karla í dag með 5-1 sigri þar sem fjögur af mörkum Stjörnunnar komu í seinni hálfleik. 23. júní 2019 19:15 Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport „Ég var bara millimetrum frá því að lamast“ Sport Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Golf Fleiri fréttir Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Sjá meira
Þórarinn Ingi meiddist illa og var fluttur á bráðamóttöku Eyjamaðurinn meiddist illa í leik Stjörnunnar og Fylkis. 23. júní 2019 17:01
Leik lokið: Stjarnan - Fylkir 5-1 | Stjarnan skein í Garðabæ Stjarnan sigraði Fylki örugglega 5-1 í Pepsi Max deild karla í dag með 5-1 sigri þar sem fjögur af mörkum Stjörnunnar komu í seinni hálfleik. 23. júní 2019 19:15