Haukar völtuðu yfir Njarðvík Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 24. júní 2019 21:21 Úr leik Hauka á síðustu leiktíð fréttablaðið/ernir
Haukar unnu stórsigur á Njarðvík suður með sjó í Inkassodeild karla í kvöld. Fyrsta mark leiksins kom á 16. mínútu þegar Aron Freyr Róbertsson skoraði fyrir gestina úr Hafnarfirði og þeir tvöfölduðu forystuna aðeins níu mínútum seinna. Á 35. mínútu skoraði Alexander Freyr Sindrason þriðja markið upp úr hornspyrnu og í uppbótartíma slógu Haukar lokahöggið á frábæran fyrri hálfleik með marki frá Ísaki Jónssyni. Heimamenn náðu að klóra í bakkann á 49. mínútu með marki frá Ara Má Andréssyni og voru hársbreidd frá því að skora sitt annað mark tveimur mínútum seinna þegar Stefán Birgir Jóhannesson skaut aukaspyrnu í þverslána. Þrátt fyrir kraft í Njarðvíkingum í seinni hálfleik voru þeir komnir ofan í of djúpa holu og náðu ekki að komast upp úr henni. Í staðinn skoraði Daði Snær Ingason fimmta mark Hauka í uppbótartíma, lokatölur 5-1. Úrslitin þýða að Haukar fara með níu stig upp fyrir Njarðvíkinga og senda þá í staðinn niður í fallsæti. Þeir fara einnig upp fyrir Aftureldingu á markatölu, en Mosfellingar eiga leik til góða. Upplýsingar um úrslit og gang mála eru fengnar frá Fótbolta.net.
Inkasso-deildin Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Handbolti Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Enski boltinn Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Enski boltinn „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Enski boltinn Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Enski boltinn Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira