Vorannáll Guðmundur Brynjólfsson skrifar 27. maí 2019 08:00 Eyrarbakka skip er ókomið og hef ég því fátt tíðinda. Veit þó að fjársýkin hefur gert marga sauðlausa á Jótlandi. Annars hefur verið umhleypingasamt þar ytra en hlýtt. Fregnaði þetta af kríum sem komu hér í síðustu viku. Fékk með sömu sendiboðum tilboð um að taka við Sóreyjarháskóla. Þáði en fer líklega hvergi. Bíð eftir bréfi um annað. En vona lítið því bréfritari hefur lengi verið aflvana í hægri armi. Hér fyrir austan var vetur góður, en nokkuð hríðasamt nyrðra fram yfir venju og kalt. Af Austurlandi engar fréttir. Sumrar ágætlega á Eyrarbakka. Selatekja ærin. Vertíð góð. Drykkjuskapur tempraður. Fregnað hefi ég útkjálkamælingu í Reykjavík. Þar er því fram haldið af bæjarstjórninni að götur eyðist um of og verslun sé á röngum stöðum. Þessu hefur verið andæft og hafa yfirsetukonur og hómópatar, ærlegir læknar og portkonur lýst yfir áhyggjum því þetta fólk vill gjarna halda sínu striki til starfa. Hafa sumir gengið svo langt að fullyrða að vegir séu grundvöllurinn eini vilji bæjarfélög kaupstaðarrétt hafa, frekar en einungis höndlunarleyfi. Mun þetta í rannsókn. Mál var uppi í höfuðstaðnum, hafði kerling ein verið skotin í vetur að ófyrirsynju til bana, og var helst fyrir hafður Rúnar nokkur Zívertsen, Sæmundar Zívertsen hattara. Guðmundur djákn skoðaði hana og vottaði dauða. Vóru gefnir fátækum af henni skórnir. Annað var ekki hægt að hirða nema hvað bæjarsjóður tók úr henni tönnurnar og hafði fyrir mulning í götur, til styrkingar. Að þessu sögðu er ljóst að lítt er að stóla á skipaferðir en jafnljóst að réttast er að koma sér upp teinæringi til Reykjavíkurferða. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Guðmundur Brynjólfsson Mest lesið Ójafn leikur á Atlantshafi Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Sykursýki snýst ekki bara um tölur Erla Kristófersdóttir,Kristín Linnet Einarsdóttir Skoðun „Samræði“ við barn er ekki til - það er alltaf ofbeldi Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Íslenska módelið í forvörnum – leiðarljós sem við erum að slökkva á Árni Guðmundsson Skoðun Víð Sýn Páll Ásgrímsson Skoðun Ég á þetta ég má þetta Arnar Atlason Skoðun Ef eitthvað væri að marka Bjarna Gunnar Smári Egilsson Skoðun Saman náum við lengra. Af hverju þverfagleg endurhæfing skiptir máli Rúnar Helgi Andrason Skoðun Höfnum óráðsíunni og blásum til sóknar Guðbergur Reynisson Skoðun Stór baráttumál Flokks fólksins orðin að lögum Inga Sæland Skoðun