Andrea og Þorleifur kynntust á Tinder og er nú fjölskyldan að verða tíu manna Stefán Árni Pálsson skrifar 9. apríl 2019 10:30
Andrea Eyland er 38 ára gömul, höfundur bókarinnar Líf kviknar og stjórnandi þáttarins Líf kviknar en bæði bókin og þættirnir fjalla um getnað, meðgöngu, fæðingu og sængurlegu. Andrea á von á sínu fimmta barni og saman eiga þau Þorleifur unnusti hennar sjö börn og verður því drengurinn sem von er á í sumar áttunda barnið sem bætist í fjölskylduna. Andrea er mikil ævintýrakona og er nýorðin jógakennari, en hún og Þorleifur eru nýkomin heim frá Maui þar sem þau lærðu grunnkennaranám í jógafræðum. Eva Laufey Kjaran kíkti í heimsókn til Andreu nú á dögunum og fékk að heyra hvað væri framundan varðandi Kviknar, um stórfjölskylduna og jóganámið á Maui. „Það var svo margt sem við náðum ekki að tala um og þetta var bara svona toppurinn á ísjakanum í Líf kviknar,“ segir Andrea. Þetta er fimmta meðganga Andreu og það var ekki úr vegi úr spyrja hvernig hún nær að halda öllum boltum á lofti með svo stóra fjölskyldu. „Þegar fólk eignast sitt fyrsta barn þá umturnast lífið. Þú getur haldið áfram með allt þitt og getur látið alla þína drauma rætast, börnin eru ekkert að stoppa þig. Svo bætast við fleiri börn en þú býrð bara til þitt eigið skema út frá því hvað þú ert með mörg börn. Ég hef verið ein með þrjú börn og núna saman með átta börn en þetta fer bara allt eftir púsluspilinu hvernig þú hagar lífinu þínu í kringum í þetta. Við erum sammála um það að við lítum ekki á börnin okkar sem eign, við eigum þau ekki. Þau bara komu til okkar og við berum ábyrgð á þeim. Við viljum gefa þeim gott líf og við elskum þau en þau eru bara sínir eigin einstaklingar.“ Andrea segir að það sé mjög stórt verkefni að sameina fjölskyldur. „Við erum með þrjú öðru megin og þrjú hinu megin og ég ætla ekki einu sinni að telja hvað eru margir barnsforeldrar. Við erum extrím útgáfan af íslensku ekki kjarnafjölskyldunni. Þorleifur sá eiginlega um þessa sameiningu. Hann tók þá ákvörðun að ef við ætluðum að leyfa börnunum að ráða því hvernig þetta allt saman fer fram yrði þetta bara erfiðara. Hann leigði bara risastóran bíl og við fórum með öll börnin saman í ferðalag í bústað. Við sögðum bara við þau að við værum vinir og værum að fara byrja saman, velkomin í fjölskylduna,“ segir Andrea og hlær. Ferðalagið gekk upp og niður. „Ég held að þau hafi fundið ákveðið öryggi í því. Við sögðum bara við þau að við elskuðum hvort annað og við elskum ykkur og núna erum við saman í þessu,“ segir Andrea en börnin eru frá sex mánaða aldri til 15 ára. Fyrir stuttu komu þau heim frá Maui. „Við kynntumst á Tinder og þetta átti nú bara að verða smá kossaflens. Þetta átti ekki að verða svona en það er einhver æðri máttur sem steig inn í. Í þessari fyrstu kossaflensviku kom það í ljós að við hefðum bæði áhuga á því að stunda jóga og okkur langaði einhvern daginn að verða jógakennarar. Svo var allt í einu komin upp sú staða í okkar lífi hvort okkur langaði að vera í 9-5 vinnu og gera eitthvað með börnunum á kvöldin og um helgar eða langar okkur að búa til líf þar sem við getum leyft þessum börnum að vera svolítið með okkur. Ég sá einhverja auglýsingu á Facebook um jógakennaranám á Maui.“ Andrea ákvað að gamni að bera hugmyndina upp fyrir Þorleifi sem tók vel í þá hugmynd og því næst spurði Andrea móður sína hvort hún væri til í að koma með þeim út og gæta barnanna á meðan þau væri í skólanum, en móðir Andreu ákvað þess í stað að flytja heim til þeirra á meðan og gæta barnanna á meðan Andrea og Þorleifur færu út í námið. „Við áttum smá varasjóð sem átti ekki að fara í þetta en við létum bara okkar eigið rassgat ganga fyrir í þessum málum. Ég var að tala um þetta við mömmu og setningin sem gerði útslagið var að hún sagði við mig, ég get aðstoðað ykkur núna en hver veit hvað verður eftir ár,“ segir Andrea en þau fóru í þriggja vikna jóganám. Það má segja að ferðin hafi verið býsna ævintýraleg en Andrea og Þorleifur notuðu tímann vel til þess að skoða eyjuna og leigðu meðal annars húsbíl sem þau keyrðu um, stoppuðu á fallegum ströndum og gistu bílnum og segir Andrea það hafa verið draumi líkast. „Við vorum ástfanginn af lífinu og tilverunni og að hvort öðru. Það er enginn betri tími heldur en núna til þess að láta drauma sína rætast,“ segir Andrea en hér að neðan má sjá innslagið.
Börn og uppeldi Samfélagsmiðlar Mest lesið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Lífið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Lífið Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið Fleiri fréttir Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Sjá meira