Aðeins fimm prósent meðlima knattspyrnuþjálfarafélagsins eru konur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2019 16:30 Blikakonur fagna titlinum síðasta sumar. Vísir/Daníel
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands stendur fyrir athyglisverðum opnum fundi í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal á miðvikudagskvöldið. Viðfangsefni fundarins er að greina hvers vegna hlutfall kvenna í þjálfarastétt er jafn lágt og raun ber vitni.Í fréttatilkynningu um fundinni kemur fram að aðeins sjö prósent þeirra sem hafa lokið þjálfaragráðu hjá KSÍ eru konur og þá eru aðeins fimm prósent meðlima þjálfarafélagsins konur. Aðeins eitt af tíu liðum í Pepsi-deild kvenna 2018 og tvö af tíu liðum í Inkasso deild kvenna 2018 enduðu tímabilið með konu sem þjálfara. Það þýðir að aðeins þrjú af tuttugu þjálfarastörfum í efstu deildum kvenna í fótbolta síðasta sumar voru skipuð af konum. Eitt annað lið í Inkasso byrjaði með konu sem þjálfara en hún hætti í júlí. Það er ekki nóg með að Bojana Besic hjá KR var eina konan sem þjálfaði lið í Pepsi-deild kvenna sumarið 2018 þá voru aðeins tvö félög af tíu með kvenkyns aðstoðarþjálfara. Þau lið voru KR (Katrín Ómarsdóttir, spilandi) og HK/Víkingur (Lidija Stojkanovic). Tuttugu þjálfarastörf voru í Pepsi deild kvenna sumarið 2018 en aðeins þrjú þeirra voru skipuð af konum. KR var með tvo kvenkynsþjálfara en í sautján af átján þjálfarastörfum hinna félaganna voru karlar. Það er því ljóst á öllu að aðgerða er þörf og Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands er að bregðast við þessari ómögulegu stöðu. Fyrirkomulag fundarins verður þannig að skipt verður í hópa sem ræða málefnið frá ýmsum hliðum og koma með ábendingar og tillögur fyrir KÞÍ og KSÍ. Fundurinn hefst í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal klukkan 18.00 miðvikudaginn 20. febrúar næstkomandi.
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport „Ég var bara millimetrum frá því að lamast“ Sport Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Golf Fleiri fréttir Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Sjá meira