Talibanar segjast hafa skrifað undir drög að friðursamkomulagi Samúel Karl Ólason skrifar 26. janúar 2019 17:50 Hingað til hafa Talibanar neitað að ræða við yfirvöld í Afganistan og hafa bara viljað ræða við erindreka Bandaríkjanna. AP/Rahmat Gul
Samningamenn Bandaríkjanna og Talibana eru sagðir hafa skrifað undir drög að friðarsamkomulagi í Afganistan. Samkomulagið mun fela í sér að allir erlendir hermenn verði farnir frá landinu eftir 18 mánuði. Friðarviðræður hafa staðið yfir í Katar í vikunni og lauk lotunni í dag en hvorki yfirvöld Bandaríkjanna né Afganistan hafa staðfest fregnirnar, sem Reuters hefur eftir heimildarmönnum sínum innan fylkinga Talibana.Zalmay Khalilzad, sérstakur erindreki Bandaríkjanna, fór beina leið frá Katar í dag og á fund Ashraf Ghani, forseta landsins, til að kynna drögin fyrir honum. Talibanar segja samkomulagið einnig fela í sér að hryðjuverkamönnum al-Qaeda eða Íslamska ríkisins verði ekki leyft að notast við Afganistan til að undirbúa eða framkvæma hryðjuverkaárásir á Bandaríkin eða bandamenn þeirra. Þá snýr samkomulagið einnig að vopnahléi í Afganistan en Talibanar munu ræða það frekar við embættismenn í Afganistan. Hingað til hafa Talibanar neitað að ræða við yfirvöld í Afganistan og hafa bara viljað ræða við erindreka Bandaríkjanna. Næsta samningalota verður í febrúar og munu samningamennirnir koma aftur saman í Katar.
Afganistan Bandaríkin Mest lesið Umdeildur skólastjóri í leyfi á meðan úttekt er gerð Innlent „Ég er sá sem getur fellt hann“ Erlent Sakfelldur fyrir morð og refsing þyngd verulega Innlent Moskító mætt á Suðurland Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Hafi kallað drenginn „grenjuskjóðu“ Innlent Þorleifur Kamban er látinn Innlent Bera ábyrgð á þjófnaði gámsins en sleppa með skrekkinn Innlent Tapaði aftur gegn borginni eftir afdrifaríka rennibrautarferð Innlent Sakborningur enn að störfum og atvikið ekki tilkynnt Innlent Fleiri fréttir Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi „Áratugur er ekki langur tími fyrir þá sem lifðu af“ „Ég er sá sem getur fellt hann“ Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Minnast þess að tíu ár eru frá hryllingnum í París Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Loftmengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Hafa uppgötvað djöflabýflugu Krefjast tvö þúsund ára fangelsisdóms yfir borgarstjóranum Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Grænlenskir góðmálmar og seinagangur bankanna Sprengdi sig í loft upp við dómshús Nýtt spillingarmál skekur Úkraínu Kínverjar menga mest en standa sig samt best Ákváðu að vera opin gagnvart börnunum varðandi veikindin „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Hótar að kæra BBC fyrir einn milljarð dala „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mistök Sjá meira