Getur ekki verið í sambandi án BDSM Stefán Árni Pálsson skrifar 18. janúar 2019 15:30 „
Það er fólk sem er hrætt við að missa vinnuna af því að það er BDSM-hneigt og það eru ekki allir sem myndu þora að koma svona fram eins og ég er að gera,“ segir Sólhrafn Elí Gunnars, 23ja ára gamall BDSM-hneigður transmaður og aktívisti. Sólhrafn, eða Hrafn eins og hann er kallaður, segist sjálfur ekki hafa orðið fyrir miklum fordómum, hvorki sem transmaður né BDSM-hneigður. Aftur á móti sé algengt að fólk í síðarnefnda hópnum lendi í talsverðum hindrunum í samfélaginu, en það hefur hann rætt nokkuð opinberlega undanfarið. Fjallað var um Sólhrafn á K100 sem má sjá hér: BDSM-hneigður transmaður.„Það hefur verið notað gegn manneskju í forræðisdeilu, að manneskjan var að stunda BDSM. Í fyrstu Pride göngunni sem við fórum í var öskrað á einn sem var með BDSM fánann að hann væri öfuguggi,“ segir Hrafn. Hann vill berjast fyrir aukinni vitund um fyrirbærið og útrýma þeirri hugsun að BDSM sé ofbeldi eða einhvers konar öfuguggaháttur. Þvert á móti segir hann það alfarið byggjast á samþykki og að mörk þátttakenda séu ætíð virt.Ekki áhugamál, heldur hneigð Hrafn segir að í sínum huga sé BDSM ekki bara áhugamál, heldur sé það hreinlega hneigð – en upp úr tvítugu, fljótlega eftir að hann kom út úr skápnum sem trans, kom hann jafnframt út úr skápnum sem BDSM-hneigður maður. „Þegar það er hneigð þá eiginlega fúnkerar maður ekki í sambandi án þess að BDSM sé hluti af því. Fólk sem stundar það sem áhugamál getur hins vegar verið í sambandi án þess. Fyrir mér er BDSM bara mjög stór hluti af lífi mínu,“ segir Hrafn.
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira