Ég er nóg Óttar Guðmundsson skrifar 19. janúar 2019 09:00 Í nýlegri skáldsögu sinni fjallar Sigríður Hagalín Björnsdóttir um þá fjötra sem ritmálið setur mannshuganum. Aðalpersóna bókarinnar reynir að losna úr viðjum þeirrar áþjánar. Sennilega er tíðarandinn þó að leysa þetta vandamál. Bóklestur fer hratt minnkandi og hið talaða orð er að ná yfirhöndinni. Margt ungt fólk er hætt að lesa hefðbundinn texta en hlustar þeim mun meira á efni á netinu. Erfitt getur reynst að ná til þessa hóps eftir hefðbundnum leiðum. Sjálfsvíg eru eitt erfiðasta viðfangsefni geðlæknisfræðinnar. Árlega falla um 40 manns fyrir eigin hendi. Heilbrigðisyfirvöldum hefur ekki tekist að lækka þessar tölur þrátt fyrir öll sín geðlyf, fræðslu, fyrirbyggjandi aðgerðir og samtalsmeðferðir. Nú á dögunum kom fram ung kona með boðskap. Hún kynnti nýgamla aðferð til að auka sjálfstraust og sjálfsþekkingu. Menn skyldu fara með einfalda möntru og jafnframt kynnast eigin styrkleikum. Mikill fjöldi fólks vildi hlusta á þessar kenningar. Hún leyfði sér að segja að þessar einföldu aðferðir gætu mögulega lækkað tíðni sjálfsvíga. Samfélagið fór á hliðina og konan var snarlega snúin niður með hávísindalegum rökum og hroka. En konan nýtir sér nýja tækni sem heilbrigðiskerfið þekkir illa. Hún kann á hið talaða orð. Ungt fólk sem ekki les hlustar á hana. Boðskapurinn er kannski barnalegur en hann er aldrei hættulegur. Það getur ekki skaðað nokkurn mann að tuldra fyrir munni sér „ég er nóg“, nokkrum sinnum á dag. Það lýsir mikilli forræðishyggju að halda að fólk geti farið sér að voða með þessum kenningum. Kannski nær konan til einhvers í sjálfsvígshættu og hjálpar honum/henni að sjá ljós í myrkrinu. Þá er mikið unnið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Óttar Guðmundsson Mest lesið Umgengnistálmanir – brot á réttindum barna Einar Hugi Bjarnason Skoðun Takk starfsfólk og forysta ÁTVR Siv Friðleifsdóttir Skoðun Meðsek um þjóðarmorð vegna aðgerðaleysis? Pétur Heimisson Skoðun Eldra fólk, þolendum ofbeldis oft ekki trúað Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þjóðarmorðið í Palestínu Arnar Eggert Thoroddsen Skoðun Tóbakslaust Ísland! - Með hjálp stefnu um skaðaminnkun Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Ytra mat í skólum og hvað svo? Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Tölfræði og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Tími ábyrgðar í útlendingamálum – ekki uppgjafar Friðþjófur Helgi Karlsson Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir Skoðun